Hermálayfirvöld segja hermennina hafi skotið umrædda menn eftir að þeir hafi hunsað viðvörunarskot. Umrætt myndskeið var sýnt á Al Jazeera sjónvarpsstöðinni en óljóst er hvenær það var tekið. Fullyrða fréttamenn stöðvarinnar að minnst tveir þeirra sem sjáist á myndbandinu hafi veifað hvítu flaggi áður en skotið var á þá.
Ísraelski herinn segir að átt hafi verið við myndskeiðið og það sýni tvö ólík atvik sem gerðust á tveimur stöðum á Gasa. Al Jazeera segir hins vegar að báðar skotárásirnar hafi átt sér stað á svipuðum stað á strönd suðvestur af Gasaborg.
Tveir féllu í loftárás við spítala
Tveir Palestínumenn létust og fimmtán aðrir særðust þegar ísraelsk loftárás hæfði tjaldbúðir á lóð spítala í borginni Deir al-Balah á Gasa í dag.
Þúsundir manna dvelja í tjöldum við Al-Aqsa Martyrs spítalann síðustu mánuði eftir að hafa flúið heimili sín á stríðshrjáðri Gasaströndinni.
Tugir þúsunda hafa leitað skjóls á sjúkrahúsum á Gasa frá því að stríðið hófst þar sem þau eru talin ólíklegri til að verða fyrir loftárásum. Ísrael hefur sakað Hamas-liða um að setja upp aðstöðu í og við heilbrigðisstofnanir og ráðist inn í fjölda spítala.
Egypskir fjölmiðlar greina frá því að til standi að hefja á ný viðræður Ísrael og Hamas um vopnahlé á Gasa í dag. Fara þær fram í Kaíró, höfuðborg Egyptalands eftir að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels gaf grænt ljós á þær á dögunum.
Veifað hvítu flaggi
Í áðurnefndu myndbandi sem náðist á strönd utan við Gasaborg sést maður ganga í burtu frá ísraelskum hermönnum skömmu áður en hann fellur til jarðar, að því er virðist eftir að hafa verið skotinn. Á einum tímapunkti sést hann lyfta höndum fyrir ofan höfuð og að sögn Al Jazeera sveiflar hann hvítu flaggi skömmu áður en hann er skotinn.
Í öðrum hluta myndskeiðsins sést annar palestínskur karlmaður nálgast ísraelska hermenn haldandi á því sem Al Jazeera lýsir einnig sem hvítu flaggi áður en hann fer út fyrir ramma myndskeiðsins.
Að lokum sést ísraelsk jarðýta ýta tveimur líkum út í sorpblandaðan sandinn. Herinn segir vinnutækið hafa verið notað af ótta við að mennirnir bæru sprengiefni innanborðs. Þá eru þeir sagðir hafa borið töskur en þær voru ekki sjáanlegar á umræddu myndskeiði.
Svipuð atvik náðst á myndband
AP-fréttaveitan greinir frá því að önnur álíka myndbönd hafi komist í dreifingu síðustu mánuði. Þau sýni ísraelska hermenn skjóta í áttina að og í sumum tilfellum drepa nálæga Palestínumenn þrátt fyrir að lítið bendi til að hermönnum hafi staðið ógn af þeim.
Í janúar birtist myndefni þar sem maður sást skotinn til bana á meðan hann gekk með hópi fólks sem veifuðu hvítu flaggi. Þá virtist annað myndskeið sem birt var af Al Jazeera í síðustu viku sýna minnst fjóra Palestínumenn gangandi á sandbornum göngustíg farast í árás Ísraela.
Palestínumenn og mannréttindasamtök saka Ísraelsher um að beita óhóflegu herafli á Gasa og gera lítinn greinarmun á hernaðarlegum skotmörkum og borgaralegum innviðum. Þetta hafi leitt til mikils mannfalls meðal almennra borgara.
Yfir 32 þúsund Palestínumenn hafa fallið í aðgerðum Ísrael á Gasa, að sögn heilbrigðisyfirvalda þar. Þær hófust þann 7. október í fyrra eftir að Hamas-liðar réðust inn í suðurhluta Ísrael og drápu þar 1.200 manns og rændu um 250 til viðbótar.