Í frétt New York Times er haft eftir heimildarmönnum í Bandaríkjunum og í Ísrael að Ísraelar hafi upprunalega ætlað sér að gera árásir á nokkur hernaðarleg skotmörk víðsvegar um Íran og þar á meðal á eitt skotmark nærri Tehran, höfuðborg Íran.
Þannig vildu Ísraelar svara umfangsmiklum árásum Írana á Ísrael þann 13. apríl, þar sem fleiri þrjú hundruð sjálfsprengidrónum og stýri- og skotflaugum var skotið að Ísrael. Allir drónarnir, allar stýriflaugarnar og flestar skotflaugarnar voru skotnar niður af Ísraelum og bandamönnum þeirra.
Sjá einnig: Skutu nánast alla dróna og eldflaugar niður
Þetta var í fyrsta sinn sem Íranar gera beina árás á Ísrael.
Svarárás Ísraela hefði að öllum líkindum leitt til frekari árása frá Íran og áframhaldandi stigmögnun. Þess í stað ákváðu Ísraelar að skjóta nokkrum eldflaugum, líklega skotflaugum, að ratsjá fyrir loftvarnarkerfi Íran. Með því vildu Ísraelar sýna klerkastjórn Íran að þeir gætu gert árásir á Íran ef viljinn væri fyrir hendi.
Þeir vildu einnig sýna að þeir gætu gert árásir á skotmörk í miðju Íran en umrædd ratsjá er tiltölulega skammt frá kjarnorkurannsóknarstöð þar sem Íranar hafa auðgað úran um árabil.
Þetta var í fyrsta sinn frá árinu 1979 sem Ísrael gerir beina árás á Íran með þessum hætti.
Í frétt NYT segir að skotflaugunum hafi verið skotið á loft úr flugvélum nokkuð langt frá landamærum Íran. Skotflaugar (e. Ballistic missile) virka á þann veg að þær fara hátt til himins, og í sumum tilfellum upp í geim, áður en þær falla aftur til jarðar og á skotmörk sín á gífurlegum hraða. Ísraelar eru einnig sagðir hafa notað dróna til að rugla loftvarnarkerfi Íran.
Aukin harka og árásir
Ísraelar og Íranar hafa eldað grátt silfur saman um árabil. Nokkuð hefur þó hitnað í kolunum á undanförnum mánuðum, samhliða innrás Ísraela á Gasaströndina.
Klerkastjórnin hefur stutt ýmissa hópa á Gasaströndinni og í Líbanon, eins og Hamas og Hesbollah sem barist hafa við Ísraela. Íranar hafa einnig stutt aðra hópa í Sýrlandi, Írak og í Jemen sem hafa á undanförnum mánuðum gert ítrekaðar árásir á bandaríska hermenn í Mið-Austurlöndum og flutningaskip á Rauðahafi.
Margir þeirra vígahópa sem Íranar styðja í Mið-Austurlöndum hafa myndað nokkurs konar regnhlífarsamtök sem kallast Íslamska andspyrnuhreyfingin.
Ákveðin þáttaskil urðu í þessu skuggastríði þegar Ísraelar gerðu loftárás á ræðismannsskrifstofu Íran í Damskus í Sýrlandi fyrr í þessum mánuði. Þar felldu þeir meðal annars tvo háttsetta herforingja í QUDS-sveitum íranska byltingarvarðarins.
QUDS-sveitirnar sjá um að útvega áðurnefndum vígahópum vopn og fjármagn og sjá þeim fyrir þjálfun og annarskonar aðstoð.