Innlent

Vill hinn al­menna launamann á þing

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Kristrún Frostadóttir boðar uppstökun þingliðs breyttrar Samfylkingar.
Kristrún Frostadóttir boðar uppstökun þingliðs breyttrar Samfylkingar. Vísir/Vilhelm

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segist vilja hinn almenna launamann á þing. Hún segist telja það mikilvægt að framboðslistar flokksins endurspegli breyttan flokk.

Í ræðu sem hún flutti í dag greindi hún frá því að flokkurinn hefði á flokkstjórnarfundi breytt reglum um framboðslista flokksins með það að leiðarljósi að endurspegla Ísland allt en „ekki bara hinar skrifandi stéttir.“ Þetta segir hún í ræðu sem hún hélt í tilefni af baráttudegi verkalýðsins á fundi Samfylkingarinnar í Iðnó fyrr í dag.

Þótt hagfræðingar, lögfræðingar og stjórnmálafræðingar geti verið ágætir þá sé allt gott í hófi. Kristrún segir Samfylkinguna þurfa fólk með alls konar bakgrunn. „Alveg eins og vera ber í stórum jafnaðarflokki sem býður sig fram til að stjórna landinu.“ Samfylkingin hefur þannig opnað á haldin verði leiðtogaprófkjör um efstu sæti á framboðslistum en að önnur sæti verði valin með uppstillingu eða á kjörfundi.

„Í þessari ákvörðun flokksstjórnar felast skilaboð og ég tel að vel fari á því að almennir flokksfélagar Samfylkingarinnar og stuðningsmenn geti kosið sér forystufólk – oddvita á framboðslistum – í prófkjöri. En að svo taki við annað ferli þar sem gætt er að fleiri sjónarmiðum. Það virðist að minnsta kosti vera heppileg leið á þessum tímapunkti í endurreisn Samfylkingarinnar, þó að auðvitað geti mismunandi kjördæmi valið að fara mismunandi leiðir,“ segir Kristrún.

Næsta verk að manna liðið

Hún segir flokkinn ætla sér að endurreisa velferðarkerfið, lyfta innviðum landsins og koma Íslandi aftur á rétta braut.

„Við vitum að fjöldi fólks um land allt leyfir sér nú að vona að þetta gangi upp hjá Samfylkingunni: að okkur takist að endurreisa velferðarkerfið, að okkur takist að lyfta innviðum landsins, að okkur takist að koma Íslandi aftur á rétta braut – eins og við ætlum okkur að gera,“ segir Kristrún.

„Þetta fólk sér að málefnastaðan er sterk og styrkist með hverju útspili, því líkar verklagið – en það veit líka að næsta verk verður að manna liðið: að stilla upp framboðslistum sem endurspegla þessa breyttu Samfylkingu – breiðari flokk, stærri flokk, klassískan jafnaðarflokk með stjórnfestu – stjórnmálaflokk sem stendur þétt með þjóð sinni, við bak hins vinnandi manns, og leggur ofuráherslu á kjör, velferð og efnahag almennings,“ bætir hún við.

Kristrún segir mikilvægt að fólkið í landinu geti séð sig í fulltrúum Samfylkingarinnar.

„Þetta snýst um að stilla upp sterku teymi – efni í þingflokk sem endurspeglar samfélagið sem við þjónum, og þar sem fólkið í landinu getur séð sig í okkar fulltrúum. Þetta er ekki bara einhver leikur eða samkeppni einstaklinga um stök sæti. Heildarmyndin skiptir máli.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×