Þetta er meðal þess sem segir í dagbók Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir gærkvöldið og nóttina. Þar segir að lögreglumenn af lögreglustöðinni í Kópavogi hafi hafið eftirför eftir að ökumaðurinn sinnti ekki stöðvunarskyldu.
Hann hafi verið handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og fyrir að hlíta ekki fyrirmælum lögreglu.
Unglingarnir höguðu sér með stakri prýði
Þá segir frá því að unglingaskemmtun ársins, Samfestingurinn, hafi farið fram í Laugardalshöll í gærkvöldi og gengið með afbrigðum vel. Það hafi komið saman um 4.500 ungmenni víðsvegar af landinu.
Samfélagslögreglumenn hafi verið á svæðinu og verið til taks auk útkallslögreglu. Orð hafi verið haft á því að ungmennin hefðu verið til fyrirmyndar.
Kom auga á innbrotsþjóf í miðjum klíðum
Í dagbókinni segir frá tilkynningu um yfirstandandi innbrot í umdæmi lögreglustöðvarinnar á Vínlandsleið í Grafarholti. Tilkynnandi hafi sagst hafa auga á manni í gegnum öryggismyndavélakerfi.
Einn hafi verið handtekinn á vettvangi, með töluvert af ætluðu þýfi í fórum sínum. Hann hafi verið vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.