Innlent

Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan at­burð

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, segir það verða sífellt ólíklegra að kvikuhlaup leiði einungis til aukins streymis í núverandi gosi.
Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, segir það verða sífellt ólíklegra að kvikuhlaup leiði einungis til aukins streymis í núverandi gosi. Vísir/Arnar

Gosið virðist vera að lognast út af en búast má við öðru þar sem kvikuhólfið undir Svartsengi er komið að þolmörkum. Prófessor í jarðeðlisfræði bendir á að það nýja gæti orðið um þúsund sinnum aflmeira en það sem nú kraumar. Enginn ætti að vera nærri sprungunni

Gosið í Sundhnúksgígum er nú varla sjáanlegt á vefmyndavélum og Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, segir það orðið mjög lítið og rétt malla.

„Það er smá hraunrennsli til norðurs en það er orðið ákaflega lítilfjörlegt og ekki langt í að það lokist alveg fyrir,“ segir Magnús Tumi.

Kvika virðist nú nær alfarið safnast fyrir undir Svartsengi en ekki fæða gosið samtímis. Fyrst gígurinn er að lokast sé sú sviðsmynd að kvikuhlaup leiði til aukins hraunstreymis í núverandi gosi að verða sífellt ólíklegri.

„Og ef það kæmi gos aftur væri líklegt að það yrði svipað og byrjunin á þessu. Opnist löng sprunga með miklum krafti til að byrja með,“ segir Magnús Tumi.

Dregið hefur verulega úr krafti eldgossins og það rétt mallar.vísir/Arnar

Engin merki séu um að heildaratburðarrásin sé að lognast út af. Líklegast sé að það gjósi á sömu sprungu og þá frekar norðar. Gjósi sunnar og nær Grindavík yrði fyrirvarinn hið minnsta meiri þar sem kvikan þyrfti að brjóta sér leið með tilheyrandi skjálftum. Óvissan sé mikil en miðað við reynsluna segir Magnús Tumi að það megi jafnvel búast við um þriggja kílómetra langri sprungu.

„Með þess vegna um þúsund sinnum meira efni en sem er að koma upp núna, það eru svoleiðis stærðargráður sem við sjáum í þessu. Byrjunin á síðasta gosi var um eitt þúsund rúmmetrar á sekúndu og nú erum við með innan við einn rúmmeter á sekúndu. Þannig það eru töluverðar andstæður, hvort við séum að tala um upphafsfasa eða lokin.“

Kvikuhólfið sé komið að þomörkum miðað við fyrri gos en um þrettán milljónir rúmmetrar hafa nú safnast fyrir undir Svartsengi. Magnús Tumi segir að miðað við reynsluna ætti að vera nægur tími til að rýma Grindavík og Bláa lónið komi til goss en að enginn ætti hins vegar að vera við sprunguna. Búast megi við gosi hvað úr hverju.

„Það er ekki hægt að útiloka að þetta fari að hegða sér öðru vísi, það verður að koma í ljós, en það er líklegast að eitthvað bresti áður en langt um líður.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×