Innlent

Undir­búa hóp­upp­sögn hjá Grinda­víkur­bæ

Lovísa Arnardóttir skrifar
Fannari Jónassyni hefur verið gert að hefja undirbúning og samráð við hagaðila um hópuppsögn starfsmanna Grindavíkurbæjar.
Fannari Jónassyni hefur verið gert að hefja undirbúning og samráð við hagaðila um hópuppsögn starfsmanna Grindavíkurbæjar. Vísir/Arnar

Bæjarstjórn Grindavíkur ákvað á fundi sínum í morgun að laga starfsmannahald bæjarins að gjörbreyttum aðstæðum og fækka störfum hjá sveitarfélaginu. Bæjarstjóra hefur verið falið að hefja undirbúning og samráð við hagaðila í samræmi við lög um hópuppsagnir. 

Frá þessu er greint í tilkynningu frá bænum. Þar kemur ekki fram hversu mörgum verður sagt upp eða hvað þau vinni við hjá bænum. 

Þar kemur þó fram að á undanförnum sex mánuðum hafi forsendur fyrir rekstri sveitarfélagsins gjörbreyst. Stór hluti Grindvíkinga sé fluttur í önnur sveitarfélög, sumir tímabundið en aðrir varanlega. Þá blasi við frekari íbúafækkun með tilheyrandi tekjutapi fyrir bæjarsjóð þar sem bæði útvarpstekjur og fasteignaskattar lækki verulegu með uppkaupum Þórkötlu fasteignafélags.

Óumflýjanleg aðgerð

Í tilkynningu bæjarins segir að launagreiðslur séu langstærsti útgjaldaliður sveitarfélagsins eða um 50 prósent af tekjum bæjarins.

„Það er mat bæjarstjórnar að í ljósi aðstæðna sé Grindavíkurbæ nauðugur einn sá kostur að gera grundvallarbreytingar á sínum rekstri, lækka kostnað og laga starfsmannahald að nýjum veruleika. Þannig sé óumflýjanlegt að fækka starfsfólki, leggja niður störf og/eða lækka starfshlutfall þvert á stofnanir og þjónustueiningar bæjarins,“ segir í tilkynningunni.

Það losi bæjaryfirvöld ekki undan þeirri skyldu að veita fólki með lögheimili í bænum þjónustu en það verði að ráðast af aðstæðum hverju sinni hver hún fer. Einnig ríki á þeim skylda að reka sveitarfélagið með sjálfbærum hætti, stilla af tekjur og útgjöld og tryggja gjaldhæfi bæjarsjóðs til lengri tíma.

„Ákvörðun um fækkun starfa er bæjarstjórn Grindavíkurbæjar afar þungbær, en bæjarfulltrúar eru einhuga um nauðsyn hennar. Aðgerðirnar verða sársaukafullar fyrir starfsfólk, fjölskyldur þeirra og aðra íbúa Grindavíkur, en eru forsenda þess að sveitarfélagið geti snúið vörn í sókn þegar aðstæður breytast. Bæjarstjórn er sannfærð um að með tímanum muni samfélag og mannlíf blómstra í Grindavík á ný. Á þessum tímapunkti er þó óvíst hve stórt það samfélag verður, hverjar verða þarfir þess og hvert umfang þjónustu eða starfsemi Grindavíkurbæjar verður,“ segir í tilkynningunni.

Framkvæmdanefnd tekur til starfa

Greint var frá því í síðustu viku að koma ætti á fót framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ. Frumvarp þess efnis liggur á þinginu.


Tengdar fréttir

„Við reyndum eins og við gátum“

Innviðaráðherra hyggst stofna sérstaka framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur vegna jarðhræringa og áhrifa þeirra á byggð þar og samfélag. Bærinn mun ráðast í einhverjar uppsagnir vegna breytinganna. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×