Um töluverða breytingu yfir lengri tíma er að ræða. Fyrir sjö árum var Ísland sem dæmi í 17. sæti og uppfyllti aðeins 47 prósent af þeim viðmiðum sem settu eru fram. Kortið er aðgengilegt hér.
Hægt er að skoða kortið eftir nokkrum flokkum eins og hatursorðræðu, fjölskyldulífi og hælisleitendur. Í öllum flokkum sem í boði eru er Ísland yfir meðaltali í Evrópu og Evrópusambandinu.
Í tilkynningu frá Samtökunum ´78 segir að meðal jákvæðra breytinga á Íslandi sé að um síðustu áramót hafi tekið gildi lög um bann við bælingarmeðferð. Eins hafi teymi heilbrigðiskerfisins sem þjónusta trans fólk bætt áætlanir og þjónustu sína í samræmi við lög um kynrænt sjálfræði, sem enn er verið að vinna inn í reglugerðir og áætlanir.
Þá hafi einnig breytur sem tengjast hinseginleikanum, eins og kynhneigð, kynvitund og kyneinkenni, verið bætt við 70. grein almennra hegningarlaga er varðar þætti sem hafa áhrif á refsihæð glæpa.

„Það er sannarlega gleðiefni hve Regnbogakortið lýsir miklum árangri í málefnum hinsegin fólks hér á landi. En á meðan við fögnum árangrinum hér á Íslandi býr hinsegin fólk í víða í Evrópu og Mið-Asíu enn við mikla ólgu, óvissu og óöryggi. Pólitískur ágreiningur um réttarstöðu hinsegin fólks hefur orðið til þess að lönd detta niður listann eða standa í stað,“ segir í tilkynningu Samtakanna ´78 um málið og að í sumum löndum megi rekja fallið beint til skipulags áróðurs sem beitt hefur verið gegn trans fólki.
Bretland og Norðurlönd falla á listanum
„Sums staðar er slíkum áróðri og hinsegin réttindum almennt beitt sem pólitísku vopni af stjórnmálafólki og stjórnmálaflokkum. Það er rétt að minnast þess að svo grafalvarleg staða er ekki bara uppi í löndum fjarri og ólíkum Íslandi, heldur til dæmis í nágrannalöndum eins og Bretlandi sem hefur fallið hratt niður Regnbogakortið undanfarin ár.“
Þá er bent á að öll hin Norðurlöndin falli niður listann því ekki hafi verið hægt að endurskrifa aðgerðaráætlanir í málaflokknum.
„Það er því mikilvægt að muna að baráttan fyrir lagalegum réttindum hinsegin fólks er síður en svo unnin,“ segir að lokum.