Tónlist

Bashar Murad kemur fram á enda­lokum LungA

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Bashar Murad hafnaði öðru sæti í Söngvakeppninni og kemur fram á síðustu LungA hátíðinni í bili.
Bashar Murad hafnaði öðru sæti í Söngvakeppninni og kemur fram á síðustu LungA hátíðinni í bili. RÚV

Listahátíðin LungA verður haldin í síðasta sinn í sumar, 15. - 21. júlí, á Seyðisfirði en 24 ár eru liðin frá því að hún var fyrst haldin. Hátíðin hefur tilkynnt flesta tónlistarmenn sem fram koma í ár en þar á meðal verður palestínski tónlistarmaðurinn Bashar Murad sem vakti mikla athygli í Söngvakeppninni í ár.

„Í ár erum við spennt að kynna að Bashar Murad kemur fram á hátíðinni. Auk þess eru hljómsveitirnar Hjaltalín og Reykjavík! að spila, en Hjaltalín hefur ekki spilað í tvö ár eftir tvenna uppselda tónleika í Hörpu. Reykjavík! eru að stíga á stokk í fyrsta sinn í tíu ár fyrir þetta tilefni! Kristján, rokkstjóri Aldrei fór ég suður og hljómsveitar meðlimur Reykjavík!, hefur sýnt okkur skilning og hlýju í umsögn varðandi lokahátíð LungA og okkar ákvörðun að loka henni.

Aðrir sem stíga á stokk eru „local“ hljómsveitir eins og CHÖGMA og Kristín Sesselja.

Spennandi og ný poppstjarna, BLOSSI, mun spila á LungA, ásamt Tara Mobee, Sunnu Margrét, Sandrayati, Flesh Machine, virgin orchestra, Sóðaskapur, Jae Tyler og Teitur Magnússon.

Tónleikarnir verða með öðru sniði í ár, en þeir munu vera úti í heilan dag, frá hádegi og fram á kvöld. 

Endalok hátíðarinnar verða falleg með lokagjörningi með öllum gestum,“ 

segir í tilkynningu frá forsvarsmönnum hátíðarinnar.

LungA hefur verið vinsæl listahátíð hjá fjölbreyttum hópi fólks síðustu rúma tvo áratugi.Juliette Rowland

Hér má finna nánari upplýsingar um LungA hátíðina. 


Tengdar fréttir

Bashar gersigraði fyrri umferð Söngvakeppninnar

Lagið Scared of Heights í flutningi Heru Bjarkar Þórhallsdóttur hlaut flest heildaratkvæði á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar á laugardagskvöld. Samtals hlaut Hera 100.835 atkvæði en Bashar Murad, sem hafnaði í öðru sæti með lagið Wild West, hlaut 97.495 atkvæði. Athygli vekur að Bashar vann fyrri umferð kosninganna með miklum mun en Hera gjörsigraði hann síðan í einvíginu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.