Fótbolti

Mæta fullir ein­beitingar til leiks: „Til­valið að eyði­leggja annað partý“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Jóhann Berg Guðmundsson er fullur einbeitingar fyrir leik kvöldsins.
Jóhann Berg Guðmundsson er fullur einbeitingar fyrir leik kvöldsins. Vísir/Stöð 2 Sport

Jóhann Berg Guðmundsson, leikmaður íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, segir að liðið mæti fullt einbeitingar til leiks þegar Ísland sækir Holland heim í vináttulandsleik í kvöld.

Íslenska liðið vann frækinn 0-1 sigur gegn Englendingum síðastliðinn föstudag í síðasta leik enska liðsins fyrir EM, en Jóhann segir að íslensku strákarnir hafi verið fljótir að koma sér niður á jörðina eftir þann sigur.

„Auðvitað frábær leikur á föstudaginn, en svo þarf bara að einbeita sér strax að næsta leik sem er á morgun [í dag]. Annar erfiður leikur og líka stutt á milli leikja, sem er erfitt,“ sagði Jóhann Berg í samtali við Val Pál Eiríksson á æfingasvæðinu í Hollandi í gær.

„Við erum bara búnir að vera að koma okkur í gang í dag og í gær og vonandi getum við bara gert svipað og á föstudaginn.“

Sigurinn gefi liðinu mikið sjálfstraust

Hann segir eðlilegt að liðið mæti með mikið sjálfstraust í leik dagsins eftir sigurinn gegn Englendingum.

„Algjörlega. Ef þú færð ekki sjálfstraust úr svona leikjum þá held ég að það sé erfitt að næla sér í eitthvað sjálfstraust.“

Klippa: Jóhann Berg fyrir leikinn gegn Hollendingum

„Auðvitað gerum við það og reynum svo bara að halda áfram okkar plani og því sem við erum að reyna að byggja á eins og ég hef verið að tala um í undanförnum viðtölum. Þetta er byrjunin á einhverju tímabili hjá okkur og fyrsti leikurinn var frábær. Svo er það bara að ná í aðra eins frammistöðu í leiknum gegn Hollendingum.“

Hann segir þó að leikmenn liðsins séu ekkert að missa sig í gleðinni þrátt fyrir sigurinn gegn Englendingum.

„Eins og ég sagði þá eru þetta æfingaleikir og við megum ekki fara of hátt upp í leikjum eins og þessum. Svo er líka stutt á milli leikja eins og ég segi þannig það þarf að passa sig hversu hátt maður fer í þessu öllu saman.“

„Þetta verður auðvitað gríðarlega erfiður leikur. Fullur völlur hér og þeir að kveðja Hollendingana sem eru að fara á EM. Þannig að það væri bara tilvalið að eyðileggja annað partý,“ sagði Jóhann sposkur að lokum.

Ísland og Holland mætast klukkan 18:45 annað kvöld. Leikurinn verður í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×