Veitingastaðurinn Bao Bite opnaði á Laugavegi 3 í vikunni, þar sem Pho Vietnam var áður til húsa. Steingrímur Jón Guðjónsson eigandi staðarins hefur reynslu úr veitingageiranum en hann var áður framkvæmdastjóri Víetnam-staðanna og sá meðal annars um að opna veitingastaði Quang Le þangað til fyrir tveimur árum.
Veitingamaðurinn Quang Le, sem hefur á pappírum notast við nafnið Davíð Viðarsson, hafði verið bak við lás og slá síðan í mars þegar honum var sleppt úr haldi um helgina. Hann sætir þó tólf vikna farbanni á meðan rannsókn lögreglu stendur yfir. Hann er grunaður um mansal, peningaþvætti, brot á atvinnuréttindum útlendinga og skipulagða brotastarfsemi í tengslu við umfangsmikinn veitingahúsa- og gistirekstur.

En hvað kom til að Steingrímur ákvað að opna þennan veitingastað, á þessum stað, á þessari stund?
„Það er raun og veru út af því að Quang Le var settur í gæsluvarðhald. Og þá náttúrlega hrundi allt veldið hjá honum,“ segir Steingrímur í samtali við Vísi.
„Leigusalarnir hringdu í mig og spurðu hvort ég vildi taka yfir samninginn, af því að ég hef alltaf haldið góðu sambandi við þá eftir að ég hætti að vinna hjá Le.“
Þeir hafi hringt í lok mars og rúmlega tveimur vikum síðar hefði verið skrifað undir nýjan samning. Þá hafi vinna við að opna staðinn hafist.

„Og ég gat ekki neitað þessu tækifæri því ég veit að þetta var staðurinn sem gekk alltaf best hjá honum, þetta er náttúrlega svo góð staðsetning,“ segir Steingrímur.
Þá hafi hann eignast góða vini frá Víetnam meðan hann vann fyrir Le, og vitað að marga þeirra vantaði vinnu eftir að veitingastöðum Lé var lokað í mars.
Hann hafi þá getað orðið þeim út um vinnu með því að opna veitingastaðinn. Hann segist hafa boðið öllum þeim fyrrverandi starfsmönnum Quang Le sem enn vantaði vinnu, starf hjá Bao Bite. Sem stendur sé hann með fimm starfsmenn í vinnu en eftir því sem líður á geti hann ráðið inn fleiri.
Tveimur þeirra hefði þó einnig boðist vinna á hóteli en ákveðið að vinna frekar fyrir Steingrím. Rekstrarstjóri Bao Bite er líka fyrrverandi starfsmaður Le, en hætti hjá honum fyrir tveimur árum þegar hann fékk varanlegt dvalarleyfi.
„Þannig að mér fannst þetta fullkomið tækifæri bæði fyrir þau og mig.“
Þannig að Quang Le kemur þessu ekki við að neinu leyti?
„Nei, alls ekki að neinu leyti. Þeir riftu samningnum við hann strax og þeir gátu og þá gerðum við nýjan samning og erum komin með þetta í gagnið.“
„Enda myndi ég annars ekki hafa tilkynnt hann til lögreglu þegar hann kom til okkar á sunnudaginn,“ bætir hann við. Vísir greindi frá því í gær að heimildir væru fyrir því að Quang Le hafi mætt á nýja vinnustaði fórnarlamba sinna eftir að hann var látinn laus úr gæsluvarðhaldi.
Verkefnastjóri vinnumarkaðssviðs ASÍ sagði þessa framkomu Le ekki koma sér á óvart, hún hafi frekar búist við henni en ekki.
Sem fyrr segir sá Steingrímur um að opna flesta staði Le áður en hann hætti störfum hjá honum.
Staðurinn var opnaður í síðustu viku. Á Bao Bite eru meðal annars Bao-bátar, núðluréttir og núðlusúpur á matseðli og í næsta mánuði stefnir Steingrímur á að ráða inn sushi-kokk til að kenna starfsfólkinu að búa til sushi.
Steingrímur segir ágætlega hafa gengið fyrstu dagana, þrátt fyrir að stillansar vegna framkvæmda við húsið hafi reynst örlítið fráhrindandi.
„En þetta dugar fyrir launum og leigu.“