Menning

„Hluti af heild sem við skiljum ekki“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Unnar Ari Baldvinsson er að opna listasýningu á Mýrargötu 18 næsta föstudag.
Unnar Ari Baldvinsson er að opna listasýningu á Mýrargötu 18 næsta föstudag. Sunna Ben

„Í gegnum þessa rannsókn vonast ég til þess að draga fram ró og jafnvægi,“ segir myndlistarmaðurinn Unnar Ari Baldvinsson. Hann opnar sýningu í versluninni La Boutique Design að Mýrargötu næstkomandi föstudag. Blaðamaður ræddi við Unnar Ara en verk hans, sem einkennast gjarnan af einföldum formum og sterkri litanotkun, hafa vakið athygli á síðastliðnum árum.

Form og óform

Verkin á sýningunni snúast um sterk og einföld form, skýra liti og tómið þar á milli. 

„Hvað er form ef ekkert er í kringum það? Í verkum mínum kanna ég jafnvægi neikvæðs rýmis og formanna sem það fyllir. Þetta er tilraun til að skapa einfalt en áhrifamikið samspil á milli þess sem er og það sem er ekki. Form og óform.

Málverkin eru í sambandi við sjálft sig og stjórna rýminu sem þau hanga í. Það hvetur áhorfandann til þess að taka eftir tómu og föstu formunum, rýminu og plássinu sem verkið tekur.

Þetta óræða form dregur mann inn, leiðir augað og býður áhorfandanum upp á nánari skoðun á verki eða rýminu sem það hangir í. Ramminn eða striginn gegnir svipuðu hlutverki og gluggi sem sýnir aðeins hluta af samsetningu alls,“ segir Unnar Ari um sýninguna.

Meðal verka Unnars Ara.Unnar Ari

Deilum tímanum með öllu sem er að gerast núna

Hið óræða er honum hugleikið og sömuleiðis tilvistarlegar spurningar.

„Það er margt í gangi í alheiminum sem við erum hvorki meðvituð um né skynjum. Á hafsbotninum, í geimnum, inni í líkama okkar og í rauninni alls staðar. Orka, tíðni, efni og tómarúm. 

Okkar söguþráður og okkar daglega líf er auðvitað ekki allt sem er að gerast í heiminum heldur sjáum við, finnum og heyrum bara agnarsmátt brot af því. Samt er þetta allt til og við deilum tímanum með öllu sem er að gerast núna.

Verkin eru hluti af heild sem við skiljum ekki en við getum velt fyrir okkur því sem við ákveðum að horfa á.

Í gegnum þessa rannsókn vonast ég til þess að draga fram ró og jafnvægi, tengingu á milli tómleika og því áþreifanlega. Hvert verk býður áhorfandanum að staldra við, íhuga og skilgreina bæði formin og óformin og ég vil leyfa rýminu að tengja saman verkið og þann sem er að horfa.“

Regla í óreglu

Unnar Ari hefur verið að skoða rýmið inni í rammanum í svolítinn tíma. 

„Ég hef líka verið að gera tilraunir með það að rugla í jafnvæginu á rammanum. Núna er ég að prófa að brjóta upp rammann og búa til fleti sem rugla í rýminu sjálfu. Þannig að það mætti segja að þessi óform séu tilraun til þess að rugla í jafnvæginu á veggnum sem ber verkið. 

Hringurinn hefur verið andstæða rammans en á sama tíma hefur hringurinn haldið honum uppi. Málverkið eða tilvera hringsins býr til tilfinningu um tíma inni í föstu formi. Regla í óreglu, form í óformi, eitt eða annað, bæði í einu,“ segir Unnar Ari brosandi að lokum.

Sýningin opnar sem áður segir næstkomandi föstudag klukkan 17:00 og eru öll verk til sölu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×