Neytendur

Ómar fær fyrir ferðina

Jón Þór Stefánsson skrifar
Esja Legal, félag Ómars R. Valdimarssonar, heldur úti vefnum Flugbaetur.is
Esja Legal, félag Ómars R. Valdimarssonar, heldur úti vefnum Flugbaetur.is Vísir

Neytendastofa segir Esju Legal, félag Ómars R. Valdimarssonar lögmanns, hafa verið með villandi og ranga upplýsingagjöf á vef sínum Flugbaetur.is þar sem ferðalöngum er boðið upp á aðstoð við innheimtu skaðabóta.

Einnig er það mat Neytendastofu að Esja Legal hafi brotið gegn lögum með því að áskilja sér rétt til að tilkynna ekki neytendum þjónustunnar um málshöfðun áður en mál er höfðað.

Í ákvörðuninni er Esju Legal bannað að viðhafa umrædda viðskiptahætti áfram.

Vísir fjallaði fyrr á þessu ári um mál pars sem leitaði til Flugbóta og vissi hvorki að dómur hefði fallið í máli þeirra né að þeim hefði verið dæmt að greiða málskostnað.

Sjá nánar: Heyrðu fyrst frá blaða­manni um dóms­málið

Í svörum Esju Legal kom m.a. fram að staðfesting umsækjanda á að hann hafi lesið, skilið og samþykkt skilmála þess feli í sér ótvírætt samþykki hans á skilmálunum sem og sérstaka ósk um að þjónusta sé veitt áður en frestur til að falla frá samningi rennur út.

Málið varðar einnig verðskrá Flugbóta, en í ákvörðun Neytendastofu segir að á forsíðu Flugbaetur.is hafi ekki verið hægt að nálgast upplýsingar um endanlegt verð á þjónustunni.

Neytendastofa gerir Esju Legal að koma skilmálum á vefsíðunni í viðeigandi horf innan tveggja vikna svo þeir séu í samræmi við lög, ef það verður ekki gert muni félagið sæta dagsektum þangað til farið verði eftir ákvörðun stofnunarinnar.

Hins vegar kemur fram í ákvörðun Neytendastofu að einhverjar breytingar hafi verið gerðar á vefsvæðinu hvað þetta varðar eftir að málið kom upp.


Tengdar fréttir

Kæra Ómar til lögreglu og kvarta til siðanefndar og Persónuverndar

Ungt par hefur ákveðið að kæra lögmanninn Ómar R. Valdimarsson vegna birtingar hans á viðkvæmum persónuupplýsingum um það á samfélagsmiðlum. Ómar birti tölvupóstsamskipti sín við parið á Facebooksíðu lögmannsstofu sinnar vegna deilu um störf hans í flugbótamáli fólksins.

Segist ekki vanhæf vegna „harla óvenjulegs“ tölvupósts Ómars

Sigríður Hjaltested, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, þarf ekki víkja úr sæti úr dómsmáli líkt og Ómar R. Valdimarsson lögmaður krafðist. Hann vildi að Sigríður tæki mögulegt vanhæfi sitt til skoðunar vegna fyrri samskipta þeirra á milli, sem tengjast sakamáli sem hefur verið kennt við skemmtistaðinn Bankastræti Club.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×