Hundrað og sjö mál voru skráð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu milli klukkan 17 í gær og fimm í nótt, og voru fjórir vistaðir í fangaklefa. Lögregla hefur meðal annars sinnt verkefnum vegna veikinda og/eða annarslegs ástands, samkvæmishávaða, grunsamlegra mannaferða og vegna ýmissar aðstoðar við borgarana.
Veitingastað í hverfi 101 var lokað þar sem staðurinn var ekki með leyfi fyrir rekstrinum auk þess sem enginn dyravörður var við störf á staðnum.
Þá var ökumaður stöðvaður við almennt umferðareftirlit í hverfi 200. Ökumaður var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og vegna vörslu fíkniefna. Ökumaður reyndist einnig sviptur ökuréttindum. Bifreiðin var ótryggð og voru skráningarmerki bifreiðarinnar fjarlægð á vettvangi.
Tilkynnt var um aðila í annarlegu ástandi sem var með ógnandi tilburði í hverfi 220. Aðilinn var handtekinn og fluttur á lögreglustöð til vistunar vegna brots á lögreglusamþykkt fyrir Hafnafjörð og vegna ástands.