Lífið

Cara í kossaflensi á Glastonbury

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Ofurfyrirsætan og leikkonan Cara Delevingne var ástfangin upp fyrir haus á tónlistarhátíðinni Glastonbury.
Ofurfyrirsætan og leikkonan Cara Delevingne var ástfangin upp fyrir haus á tónlistarhátíðinni Glastonbury. Samir Hussein/WireImage

Ofurfyrirsætan og leikkonan Cara Delevingne er ástfangin upp fyrir haus og virðist sjaldan hafa verið á betri stað í lífinu. Í júní fagnaði hún tveggja ára sambandsafmæli með tónlistarkonunni Minke og gátu þær ekki slitið sig frá hvor annarri á Glastonbury tónlistarhátíðinni um síðustu helgi. 

Cara, sem er fædd árið 1992, hefur átt viðburðaríka ævi og setið fyrir hjá stærstu tískurisum heims. Sömuleiðis hefur hún farið með hlutverk í bíómyndum á borð við Suicide Squad og er með 41,5 milljónir fylgjenda á samfélagsmiðlinum Instagram. 

Hún hefur ekki alltaf átt sjö dagana sæla og fór meðal annars í meðferð árið 2022 eftir að hafa sést við flugvöll í mjög svo annarlegu ástandi. Að hennar sögn hefur hún haldið sér edrú síðan. 

Þá kviknaði í húsi hennar í Los Angeles í mars á þessu ári. 

Ástin virðist vera henni öflugt haldreypi í lífinu en 5. júní birti hún hjartnæma færslu á Instagram þar sem hún fagnaði stórum tímam´ptum, tveggja ára sambandsafmæli hennar og Minke. Þar skrifar hún meðal annars: 

„Tvö töfrandi ár með þér og svo margar myndir af okkur að kyssast fyrir framan hluti. Þessi síðustu tvö ár hafa verið heilmikið líf. Mikið af breytingu, þroska, sársauka og mikilvægast af öllu ást og ég er svo heppin að hafa fundið hina fullkomnu manneskju til að ferðast með í gegnum hæðir og lægðir lífsins. Ég get ekki ímyndað mér að lifa lífinu án þín. 

Ég eyddi svo löngum tíma í að finna félaga minn í glæpum (e. partner in crime) og ekki grunaði mig að það væri einhver sem ég gekk í skóla með (og var skotin í). Hlakka til margra fleiri ára af okkur að vera við sjálfar.“

Minke heitir réttu nafni Leah Mason og kemur frá London. Hún og Cara þekktust í æsku og fór rómantíkin að gera vart við sig þeirra á milli fyrir rúmum tveimur árum. Minke byrjaði tónlistarferilinn átján ára gömul og skrifaði þá undir samning við plötuútgáfu í Nashville þar sem hún gaf út tónlist undir eigin nafni. Fljótt fór þó hana að skorta innblástur og fann sig ekki þannig að hún breytti um stefnu og varð að tónlistarkonunni Minke. Hún er með um 155 þúsund mánaðarlega hlustendur á streymisveitunni Spotify og eru sum lög hennar með yfir 10 milljónir streyma. 

Hér má sjá fleiri myndir af Cöru á Glastonbury: 

Cara og Minke njóta þess að horfa á Shania Twain troða upp á Glastonbury hér í góðum félagsskap með leikkonunni Anya Taylor-Joy.Samir Hussein/WireImage

Cara Delevingne og leikkonan Anya Taylor-Joy eru góðar vinkonur og klæddu sig sumarlega og smart þegar sólin lét sjá sig í Bretlandi um síðustu helgi.Dave Benett/Getty Images

Cara Delevingne og Minke eru sætar saman.Samir Hussein/WireImage
Cara Delevingne hefur að eigin sögn verið edrú frá 2022 en sama ár kynntist hún Minke. Hún skemmti sér vel á Avril Lavigne tónleikum á Glastonbury hátíðinni um síðustu helgi með Mary Charteris, Anya Taylor-Joy og sinni heittelskuðu Minke.Samir Hussein/WireImage

Tengdar fréttir

Hegðunin á flug­vellinum hafi gert út­slagið

Fyrirsætan og leikkonan Cara Delevingne segir það vel þess virði að hafa ákveðið að verða edrú. Hún segir það hafa gert útslagið að sjá sjálfa sig að haga sér furðulega á flugvelli. Þá hafi hún ákveðið að fara í meðferð.

Vinir Cöru Delevingne hafa miklar áhyggjur af heilsu hennar

Heilsa fyrirsætunnar Cöru Delevingne hefur verið mikið í umræðunni vestanhafs og virðast vinir hennar hafa miklar áhyggjur. Leikkonan Margot Robbie sást meðal annars koma grátandi út af heimili Cöru sama dag og fyrirsætan átti að vera á viðburði sem hún mætti ekki á. 

Gaman að kyssa vinkonu sína

Fyrirsætan Cara Delevingne segir það hafa verið gaman að leika ástkonu vinkonu sinnar Selenu Gomez í þáttunum Only Murders in the Building. „Er einhver í heiminum sem myndi ekki vilja kyssa Selenu?“ Spyr hún einnig í viðtali við E!News. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×