Menning

Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Horna­fjarðar

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Það var líf og fjör á sýningaropnun á Humarhátíð í Hornafirði.
Það var líf og fjör á sýningaropnun á Humarhátíð í Hornafirði. Tim Junge

Föstudaginn 28. júní opnaði sýningin Nr. 5 Umhverfing með pompi á prakt á Humarhátíð á Höfn í Hornafirði. Sýningin er með 52 listamönnum og nær yfir meira en 200 kílómetra svæði með fjölda listaverka bæði innanhúss og utandyra.

„Að sýningunni standa meðlimir í Akademíu Skynjunarinnar, þær Anna Eyjólfs, Þórdís Alda Sigurðardóttir og Ragnhildur Stefánsdóttir. Þetta er í fimmta sinn sem sýning með nafnið Umhverfing opnar en áður hafa þær skipulagt og gefið út bækur um Umhverfingu á Skagafirði, Egilsstöðum, Snæfellsnesi og Vestfjörðum.

Í þetta sinn er samsýningin samstarf með Listasafni Svavars Guðnasonar sem rekið er af safnverðinum Snæbirni Brynjarssyni, en það heyrir undir Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Opnun þessarar viðamiklu og stærstu listasýningar í sögu Hornafjarðar fór fram í Gömlubúð en það er elsta húsið á Höfn og var flutt þangað úr Papafirði yfir fjöll og vötn þegar Höfn var reist árið 1897.

Sjaldan hefur jafn mikið af fólki komið saman í Gömlubúð, en um veitingar á viðburðinum sá sjónvarpskokkurinn og fjöllistamaðurinn Kristinn Guðmundsson,“ segir í fréttatilkynningu.

Hér má sjá myndir frá opnunarteitinu:

Anna Eyjólfs, Þórdís Alda Sigurðard, Snæbjörn Brynjarsson, Eyrún Ævarsdóttir, Ragnhildur Stefánsd og Hanna Dís Whitehead.Tim Junge
Áróra Gústafsdóttir og Spessi.Tim Junge
Áróra Gústafsdóttir og Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir virða fyrir sér vegginn.Tim Junge
Ástríður Sveinbjörnsdóttir spjallaði við sýningargesti.Tim Junge
Áhorfendur á vídjóverki Ósk Vilhjálmsdóttur.Tim Junge
Anna Eyjólfs formaður SÍM opnar Nr. 5 Umhverfing.Tim Junge
Arna og Matthildur fyrrum bæjarstjóri Ásmundardætur.Tim Junge
Áróra Gústafsdóttir skólastjóri í Öræfum.Tim Junge
Snæbjörn Brynjarsson og einn fyrrverandi safnvörður og listakonan Hanna Dís Whitehead. Hún opnaði sömuleiðis einkasýningu á Höfn um helgina.Tim Junge
Eyrún Axelsdóttir frá Hrafnavöllum og Lísa Þorsteinsdóttir spjalla við Þórdísi Öldu Sigurðardóttur.Tim Junge
Eva og Ægir.Tim Junge
Sýningargestir í lyftu.Tim Junge
Það var margt um manninn á opnuninni.Tim Junge
Kristinn Guðmundsson sjónvarpskokkur segir frá veitingunum.Tim Junge
Kvikmyndaleikstjórinn Hlynur Pálmason spjallar við Harald Jónsson myndlistarmann, í bakgrunni sést Sigrún Brynjarsdóttir.Tim Junge
María Sjöfn Dupuis og Eva Bjarnadóttir.Tim Junge
María Sjöfn Dupuis, Ósk Vilhjálmsdóttir og Eygló Harðardóttir listamenn.Tim Junge
Myndlistarkonan Rúrí fremur hér gjörning.Tim Junge
Ljósmyndararnir Spessi og Lovísa Fanney Árnadóttir.Tim Junge
Listamennirnir Kristinn Guðmundsson, Haraldur Jónsson og Halldór ÁsgeirssonTim Junge
Listamennirnir Ragnhildur Stefánsdóttir, Ósk Vilhjálmsdóttir og Margrét Blöndal.Tim Junge
Spessi og Ragnhildur Stefánsdóttir.Tim Junge
Sunginn var afmælissöngur fyrir stöllurnar Ragnheiði Bjarnarson og Ragnhildi Stefánsdóttur.Tim Junge
Snæbjörn Brynjarsson safnvörður á Svavarssafni býður gesti velkomna.Tim Junge
Spessi og Eyrún Axelsdóttir snúa bökum saman.Tim Junge





Fleiri fréttir

Sjá meira


×