Holland í átta liða úr­slit EM í fyrsta sinn í sex­tán ár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cody Gakpo var í aðalhlutverki í sigri Hollendinga. Skoraði fyrsta markið og lagði upp mark númer tvö. Eftir það var sigur hollenska liðsins nánast í höfn.
Cody Gakpo var í aðalhlutverki í sigri Hollendinga. Skoraði fyrsta markið og lagði upp mark númer tvö. Eftir það var sigur hollenska liðsins nánast í höfn. Getty/Alexander Hassenstein

Liverpool maðurinn Cody Gakpo gerði útslagið fyrir hollenska liðið í kvöld. Skoraði fyrsta markið og lagði upp mark númer tvö. Varamaðurinn Donyell Malen skoraði tvö síðustu mörkin á síðustu tíu mínútunum.

Þetta er í fyrsta sinn síðan 2008 sem hollenska landsliðið kemst alla leið í átta liða úrslit Evrópumótsins.

Hollendingar mæta annað hvort Austurríki eða Tyrklandi sem spila seinna í kvöld. Eftir það verður ljóst hvernig átta liða úrslitin líta út en þau hefjast síðan á föstudaginn.

Gakpo hefur verið atkvæðamesti leikmaður Hollendinga á þessu Evrópumóti og hann skoraði sitt þriðja mark í keppninni í kvöld.

Gakpo kom Hollandi í 1-0 á 20. mínútu leiksins með skoti utarlega út teignum en markvörður Rúmena hefði kannski mátt gera betur þar.

Hollendingar sóttu og sóttu í þessum leik í kvöld en fóru illa með fjölda færa sinna. Á meðan munurinn var bara eitt mark voru Rúmenarnir alltaf inn í leiknum.

Gakpo hélt að hann hefði bætt við öðru marki sínu en myndbandsdómarar dæmdu markið af vegna rangstæðu.

Spennan hélst í leiknum á meðan Hollendingar bættu ekki við mörkum þrátt fyrir alla yfirburðina.

Annað markið kom síðan á endanum sjö mínútum fyrir leikslok. Gakpo gerði mjög vel með að halda boltanum inn á vellinum á endalínunni og leggja hann síðan út á Donyell Malen sem kom Hollandi yfir af stuttu færi.

Malen innsiglaði síðan sigurinn með því að labba alla leið í gegnum rúmensku vörnina og skora þriðja markið í uppbótatíma.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira