Kvikmyndastjarna slær í gegn á Landsmóti hestamanna Jón Ísak Ragnarsson skrifar 4. júlí 2024 20:00 Eiðfaxi/Kolla Gr Hornfirðingurinn Ída Mekkín Hlynsdóttir fer nú mikinn á Landsmóti hestamanna. Hún er í fjórða sæti í unglingaflokki eftir keppni í milliriðlinum, og hefur tryggt sér sæti í úrslitum. Ída Mekkín var ellefu ára þegar hún var í burðarhlutverki í kvikmyndinni Hvítur hvítur dagur, og lék einnig í myndinni Volaða land, en hún er dóttir leikstjórans og handritshöfundarins Hlyns Pálmasonar.
Ída Mekkín keppir nú í unglingaflokki á Landsmóti hestamanna sem nú stendur yfir í Reykjavík. Hún keppir á hestinum Marín frá Lækjarbrekku 2 fyrir hestamannafélagið Hornfirðingur. Leikari og hestakona Ída Mekkín skaust ung upp á stjörnuhimininn þegar hún fór með stórleik á móti Ingvari E. Sigurðssyni í kvikmyndinni Hvítur hvítur dagur, en bæði voru þau í burðarhlutverkum. Myndin hverfist um þrúgandi harm lögreglustjórans Ingimundar sem missir eiginkonu sína í bílslysi og samband hans við dótturdótturina, Sölku, sem syrgir ömmu sína meðan hún er helsta haldreipi afa síns í tættri tilverunni. Ída sagði þá í viðtali við Vísi að hana langi til að vera hestakona, en ætli að leika inn á milli „ef það kemur eitthvað spennandi.“ Kvikmyndagerðin hafi stundum reynt á þolinmæðina. „Eftir á er ég alveg til í að leika meira en þetta var stundum leiðinlegt á meðan. En þegar maður hugsar til baka þá var þetta alveg skemmtilegt, skilurðu,“ sagði Ída. Síðasta mót hestsins fyrir folaldseignir Óhætt er að segja að hestamennskan gangi vel hjá Ídu. Eftir milliriðilinn eru hún og hestur hennar Marín með 8,86 stig. Í viðtali við Eiðfaxa segist hún vera ánægð með árangurinn, og að markmiðið hafi verið að komast í 8,4 stig. „Þetta er núna þriðja árið mitt með Marín, fyrst átti ég bara að keppa á henni á Landsmótinu á Hellu, svo átti hún að fara í folaldseignir. Nema svo ákváðum við að taka hana á fjórðungsmót, sem var í fyrra, og svo ákváðum við að taka hana á Landsmót hingað líka,“ segir Ída. Landsmótið sé nú hennar síðasta áður en hún fari svo í folaldseignir. Sjá annað viðtal Eiðfaxa við Ídu. Ída sigurreif við óþekkt tilefni.Eiðfaxi Ída á Cannes kvikmyndahátíðinni ásamt fríðu föruneyti árið 2022, þegar Volaða land var þar heimsfrumsýnd. Frá vinstri: Ída Mekkín Hlynsdóttir, Ingar Eggert Sigurðsson, Elliott Crosset Hove, Hlynur Pálmason, Victoria Carmen Sonne og Hilmar Guðjónsson.Getty Ída í myndinni Hvítur hvítur dagurVísir
Hestar Hestaíþróttir Landsmót hestamanna Bíó og sjónvarp Mest lesið Ólafía Hrönn reyndist vera á bak við „stóra pokamálið“ Lífið Sauð upp úr í stjörnufansi á golfmóti Coolbet Lífið Setti sér markmið og hóf veitingarekstur átján ára Lífið Kvikmyndastjarna slær í gegn á Landsmóti hestamanna Lífið Gyðjusamkoma með glæsilegum gellum Lífið Leysir frá brandaraskjóðunni Lífið Simmi Vill spilaði Skítakall við nýju kærustuna Lífið Þurfti að vinda skyrtuna eftir tryllt gigg í Víetnam Tónlist Júlía Margrét gengin út Lífið Dvaldi í tjaldi á hringtorgi þar til lögreglan kom Lífið Fleiri fréttir Kvikmyndastjarna slær í gegn á Landsmóti hestamanna Fannst eins og hann væri eini fulli í brekkunni fyrir hádegi Sauð upp úr í stjörnufansi á golfmóti Coolbet Júlía Margrét gengin út Setti sér markmið og hóf veitingarekstur átján ára Helvítis kokkurinn: Gómsætar grillaðar lambakótelettur Götutíska fyrir íslenskar aðstæður Keppti við Prettyboitjokkó í kuldaskóm Gyðjusamkoma með glæsilegum gellum Biden móment hjá Nick Cave í Eldborg Herbert Guðmunds og Prettyboitjokko gefa út lag Ólafía Hrönn reyndist vera á bak við „stóra pokamálið“ Simmi Vill spilaði Skítakall við nýju kærustuna Tískudrottning og eigandi Drykk bar selja slotið Leysir frá brandaraskjóðunni Er paprikan mín kvenkyns? Íslenskir dansarar sópa til sín verðlaunum á heimsmeistaramóti Aukin lofthæð, Versace flísar, pottur og pool herbergi Dvaldi í tjaldi á hringtorgi þar til lögreglan kom Akureyringar komast loksins á Prikið Myndaveisla: Metfjöldi á opnunarhelgi Hjarta Hafnarfjarðar Starfsfólkið í fyrsta sæti og börnin í öðru Stúlkur úr Listdansskóla Íslands hrepptu heimsmeistaratitil Tinna Brá og Ari Eldjárn færðu fertugsafmælið út á sjó Arnhildur tilnefnd til verðlauna Cara í kossaflensi á Glastonbury Stjörnulífið: „Þegar dagdrykkja fer úr böndunum“ Ellu Fitzgerald verðlaun til Laufeyjar Egill og Íris eignuðust stelpu Næturfærslur á Facebook heyra sögunni til Sjá meira