Tíska og hönnun

Myndaveisla: Aron Can, Issi og Patti í tískupartýi ársins

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Patrik, Aron Can, Daði Ómars og fleiri mættu í 66 Norður x Reykjavik Roses partýið í síðustu viku. Daði Ómars þeytti skífum.
Patrik, Aron Can, Daði Ómars og fleiri mættu í 66 Norður x Reykjavik Roses partýið í síðustu viku. Daði Ómars þeytti skífum. Hjördís Jónsdóttir

Síðastliðinn fimmtudag kynnti 66°Norður nýju samstarfslínu sína við íslenska fatamerkið Reykjavik Roses. Tilhlökkun tískuunnenda var gríðarleg og mikil röð myndaðist upp Laugarveginn fyrir opnun.

Í fréttatilkynningu segir:

„Línan er blanda af menningu RR og arfleifð 66°Norður en flíkurnar eru allar framleiddar í verksmiðjum 66°Norður.“

Arnar Leó hjá Reykjavík Roses segir í Instagram færslu að hugmyndin að samstarfinu hafi kviknað fyrir þremur árum.

„Fyrir þremur árum sátum við Bergur Guðna í bíl á Austurlandinu í tökum hjá 66 þegar að við ræddum um hversu geðveikt það væri ef að við myndum einhvern tíma hanna samstarfslínu.

Þremur árum seinna sitjum við saman í Miðhrauni að púsla saman samstarfsverkefni Reykjavík Roses og 66 norður. Takk allir sem komu að þessu verkefni og lögðu sitt af mörkum.“

Hér má sjá myndir frá opnunarteitinu: 

Arnar Leó eigandi Reykjavik Roses.Hjördís Jónsdóttir
Rapparinn Aron Can tekur mynd af Arnari Leó vini sínum.Hjördís Jónsdóttir
DJ Daði Ómars þeytti skífum í töff umhverfi.Hjördís Jónsdóttir
Plötusnúðarnir Daði Ómars og Egill Spegill.Hjördís Jónsdóttir
Mikil mannmergð myndaðist fyrir utan og Vífilfell sá um drykki fyrir gesti.Hjördís Jónsdóttir
Listamenn höfðu graffað RVK Roses x 66 fyrir utan verslunina á Laugavegi. Hópur fólks beið spennt eftir að komast inn.Hjördís Jónsdóttir
Sköpunargleðin allsráðandi! Karen Thuy hönnuður frá 66°Norður, Arnar Leó eigandi Reykjavik Roses og Bergur hönnuður frá 66°Norður.Hjördís Jónsdóttir.
Samstarfsverkefnið inniheldur nokkrar flíkur.Hjördís Jónsdóttir
Fjölbreyttur hópur tískuunnenda mætti á svæðið.Hjördís Jónsdóttir
Mikið stuð!Hjördís Jónsdóttir
Til að mæta eftirspurninni þurfti að klæða gínurnar úr í lok kvölds.Hjördís Jónsdóttir
Patti lét sig ekki vanta.Hjördís Jónsdóttir
Patrik og Gústi B skoðuðu úrvalið.Hjördís Jónsdóttir
Röðin náði langt niður á Laugaveg.Hjördís Jónsdóttir
Fólk lét sér ekki leiðast í röðinni og brosti breitt.Hjördís Jónsdóttir
Stormur Jón Kormákur Baltasarsson og DJ Daði Ómars.Hjördís Jónsdóttir
Pokarnir voru skreyttir með graffi.Hjördís Jónsdóttir
Fullt var út úr dyrum.Hjördís Jónsdóttir
Gestir mættu í töff klæðnaði.Hjördís Jónsdóttir
Þessi var í stuði.Hjördís Jónsdóttir
Menn að máta.Hjördís Jónsdóttir
Margt að skoða!Hjördís Jónsdóttir
Stormur og Arnar Leó voru sáttir með viðburðinn en Stormur sat fyrir í auglýsingunni.Hjördís Jónsdóttir
Skvísur að máta.Hjördís Jónsdóttir
Listamaður skreytti gluggana með graffi.Hjördís Jónsdóttir
Hettupeysan var vinsæl.Hjördís Jónsdóttir
Gluggarnir vöktu mikla athygli.Hjördís Jónsdóttir
Biðröðin minnti á götuhátíð.Hjördís Jónsdóttir
Sköpunargleðin allsráðandi! Karen Thuy hönnuður frá 66°Norður, Arnar Leó eigandi Reykjavik Roses og Bergur hönnuður frá 66°Norður.Hjördís Jónsdóttir.
Stormur Kormákur og fleiri módel uppi á skjá.Hjördís Jónsdóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×