Menning

„Leiðin verður að vera ó­viss svo vel sé“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Guðný Rósa var að opna einkasýningu í Ásmundarsal.
Guðný Rósa var að opna einkasýningu í Ásmundarsal. Olivia Houston

„Verklag mitt er samfellt flæði. Öllu skiptir að vera stöðugt að og leitandi,“ segir myndlistarkonan Guðný Rósa Ingimarsdóttir. Hún opnaði einkasýninguna Hornafjöldi í hættu í Ásmundarsal á dögunum en sýningin fylgir gestum inn í sumarið og stendur til 6. ágúst næstkomandi.

Í fréttatilkynningu segir:

„Sýningin er unnin sérstaklega fyrir Ásmundarsal en verk Guðnýjar Rósu bera með sér ríka nánd, jafnt í efnisvali sem og vinnuaðferðum.

Þau eru dæmi um listsköpun þar sem persóna og hönd listamannsins eru nálæg í hverju einasta verki, hverri einustu línu, saumspori, fláðu yfirborði og rifnu pappírsblaði, í hverju orði og setningu, hvort sem þær eru hennar hugarsmíð eða fengnar að láni.“

Guðný er búsett í Belgíu en á síðustu tveimur árum hefur hún sótt aukið heim. Hún segir:

„Í þessum tíðu en stuttu heimsóknum kem ég ávallt við í Ásmundarsal og stend mig nú að því að dvelja lengur. Að skoða þá fyrst sýningarnar og svo salinn sjálfan … eða öfugt. Þá sit ég oft lengi ein og rýni í gólf og á veggi. Fylgi eftir lekandi sprungum, dvel í særðum flötum, stúdera viðgerðir … hrúðurmyndun á yfirboði. Velti fyrir mér því sem undir liggur.

Verklag mitt er samfellt flæði. Öllu skiptir að vera stöðugt að og leitandi. Að teikna aldrei fyrir fram upp sýningar. Að vita ekki hver niðurstaðan verður né hvert skal stefnt. Leiðin verður að vera óviss svo vel sé.“

Hér má sjá myndir frá opnuninni:

Sýningargestir grandskoða list Guðnýjar Rósu.Olivia Houston
Mikil gleði á opnun.Olivia Houston
Spáð í listinni.Olivia Houston
Margt var um manninn.Olivia Houston
Verk Guðnýjar Rósu fela í sér ákveðna nánd.Olivia Houston
Guðný Rósa var í skýjunum við opnun.Olivia Houston
Listunnendur í Ásmunarsal.Olivia Houston
Fjölbreytt verk erftir Guðnýju Rósu.Vigfús Birgisson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×