Innlent

Fjórir skjálftar stærri en 3 við Kol­beins­ey

Jón Þór Stefánsson skrifar
Jarðskjálftakort Veðurstofunnar.
Jarðskjálftakort Veðurstofunnar. Veðurstofa Íslands

Fjórir jarðskjálftar stærri en 3 að stærð mældust við Kolbeinseyjarhrygg í gær. Skjálftarnir voru staðsettur um 200 kílómetra norður af landi.

Á vef Veðurstofunnar segir að stærsti skjálftinn, sem mældist 3,5, hafi orðið klukkan 15:18 í gær og verið um sextíu kílómetra norðaustan af Kolbeinsey.

Sá næst stærsti varð klukkan 18:26 og mældist 3,4 og var 115 kílómetra norðan af Kolbeinsey.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×