Eng­land á leið í úr­slit eftir endurkomusigur gegn Hollandi

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Ollie Watkins kom inn af varamannabekknum og skoraði sigurmarkið úr ómögulegu færi í uppbótartíma. 
Ollie Watkins kom inn af varamannabekknum og skoraði sigurmarkið úr ómögulegu færi í uppbótartíma.  Alex Grimm/Getty Images

England lenti snemma undir en vann 2-1 endurkomusigur gegn Hollandi og er á leið í úrslitaleik Evrópumótsins næsta sunnudag gegn Spáni.

Xavi Simons kom Hollendingum yfir eftir aðeins sjö mínútur. Stórkostlegt einstaklingsframtak þar sem Simons vann boltann af Declan Rice, keyrði svo sjálfur og skaut þrumuskoti framhjá Jordan Pickford í markinu.

Xavi Simons skoraði glæsilegt mark fyrir Holland í upphafi leiks. Image Photo Agency/Getty Images

Aðeins tíu mínútum síðar fengu Englendingar vítaspyrnu þegar Denzel Dumfries braut á Harry Kane, sem steig sjálfur á punktinn og skoraði af miklu öryggi.

Denzel Dumfries var dæmdur brotlegur. Justin Setterfield/Getty Images
Harry Kane var öryggið uppmálað af vítapunktinum. Richard Pelham/Getty Images

Phil Foden var óheppinn að hafa ekki komið Englendingum yfir, fékk tvö tækifæri til en fyrst var bjargað á línu og svo small boltinn af stönginni og út. Staðan jöfn 1-1 í hálfleik.

Virgil Van Dijk fékk fyrsta góða færi seinni hálfleiks á 65. mínútu eftir aukaspyrnu en klippti boltann beint í hendur markmannsins.

Bukayo Saka setti boltann í netið á 79. mínútu en markið var dæmt af vegna rangstöðu Kyle Walker sem gaf á hann.

Varamaðurinn Ollie Watkins varð hetja Englendinga í uppbótartíma þegar hann skoraði úr að því virtist ómögulegu færi. Með mann í bakinu og þröngan skotvinkil en sneri sér vel og laumaði boltanum meðfram jörðinni í fjærhornið.

Lokatölur 2-1 fyrir Englandi og þeir mæta Spáni í úrslitaleik Evrópumótsins næsta sunnudag.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira