Innlent

Sóttu fram­kvæmda­stjóra þing­flokks til SA

Árni Sæberg skrifar
Stefanía Kolbrún Ásbjörnsdóttir er ný framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins.
Stefanía Kolbrún Ásbjörnsdóttir er ný framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins.

Stefanía Kolbrún Ásbjörnsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Hún tekur við af Tryggva Mássyni, sem hefur tekið við starfi hjá Klíníkinni.

Í fréttatilkynningu frá þingflokknum segir að Stefanía Kolbrún sé hagfræðingur með BS gráðu frá Háskóla Íslands og meistaragráðu frá Barcelona School of Economics. 

Hún hafi starfað sem hagfræðingur á efnahagssviði Samtaka atvinnulífsins frá árinu 2018 ásamt því að hafa sinnt kennslu við hagfræðideild Háskóla Íslands og viðskiptafræðideild Háskólans í Reykjavík. Hjá Samtökum atvinnulífsins hafi Stefanía Kolbrún sinnt ýmiss konar greiningarvinnu, greinaskrifum og kynningum í tengslum við gerð kjarasamninga og efnahags- og atvinnulífsmál almennt. 

Full tilhlökkunar

Stefanía Kolbrún hafi jafnframt sinnt fjölmörgum félagsstörfum og meðal annars staðið að stofnun Hagsmunafélags kvenna í hagfræði.

„Ég er full tilhlökkunar fyrir komandi þingvetri og að takast á við þau ýmsu spennandi og krefjandi verkefni sem fram undan eru, með öllu því góða fólki sem starfar fyrir þingflokk Sjálfstæðisflokksins, svo ekki sé minnst á þingmenn flokksins,“ er haft eftir Stefaníu Kolbrúnu.

Leiðir viðskiptaþróun hjá Klíníkinni

Þá segir að Stefanía Kolbrún taki við af Tryggva Mássyni, sem hafi verið ráðinn til þess að fara fyrir viðskiptaþróun hjá Klíníkinni, en staðan sé ný innan félagsins. Auk þess að leiða viðskiptaþróun innan félagsins muni hann starfa náið með framkvæmdastjórn að stefnumótun og vexti Klíníkurinnar.

„Um leið og ég þakka Tryggva innilega fyrir sitt ómetanlega starf fyrir þingflokkinn og óska honum farsældar á spennandi vettvangi þá er ég gríðarlega stolt og ánægð með ráðningu Stefaníu. Ég veit að þekking hennar og hæfileikar munu koma að gagni við að forgangsraða áherslumálum inn í krefjandi þingvetur. Þannig getum við best nýtt krafta okkar í þágu mikilvægra stefnumála Sjálfstæðisflokksins samfélaginu til góðs. Það eru stór verkefni framundan og ég hlakka til að njóta liðsinnis Stefaníu í þeim,“ er haft eftir Hildi Sverrisdóttur, þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×