Innlent

Vöru­bíll hafnaði utan vegar á hliðinni í Mýr­dals­hreppi

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Ökumaður slasaðist en virðist ekki vera alvarlega slasaður að sögn viðbragðsaðila.
Ökumaður slasaðist en virðist ekki vera alvarlega slasaður að sögn viðbragðsaðila. Vísir

Vörubíll hafnaði á hliðinni eftir að hafa ekið út af veginum í neðstu beygjunni í Gatnabrún í Mýrdalshreppi á Hringveginum. Umferð hefur verið stöðvuð tímabundið.

Ívar Páll Bjartmarsson slökkviliðsstjóri í Mýrdalshreppi staðfestir í samtali við fréttastofu að ökumaður hafi einn verið í bílnum og að hann sé kominn úr bílnum. Bíllinn varð þó fyrir umtalsverðu tjóni.

Verið er að hlúa að ökumanninum í sjúkrabíl en fulltrúar frá slökkviliðinu og sjúkraflutningamenn eru á vettvangi. Ívar segir manninn ekki vera alvarlega slasaðan við fyrstu sýn en getur ekki veitt frekari upplýsingar um líðan hans.

Lokað hefur verið fyrir umferð á þjóðveginum á þessum kafla en Ívar segir að fljótlega verði hleypt aftur á aðra akreinina. Hann viti þó ekki nákvæmlega hvenær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×