Innlent

Ís­lendingur fannst látinn á Spáni

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Maðurinn fannst látinn á föstudag.
Maðurinn fannst látinn á föstudag. vísir

48 ára Íslendingur fannst látinn á föstudag á Spáni. Þetta fæst staðfest af utanríkisráðuneyti en frekari upplýsingar af málinu, og hvers eðlis það er, fást ekki að svo stöddu. 

Nánar tiltekið staðfestir Marín Þórsdóttir, verkefnastjóri hjá heimferða- og fylgdadeild Ríkislögreglustjóra, andlátið í samtali við Vísi, en DV greindi fyrst frá andlátinu. 

Marín segir ekkert saknæmt hafa átt sér stað. Málið sé á borði spænsku lögreglunnar. 

Marín vildi heldur ekki gefa það upp hvar á Spáni maðurinn hafi fundist látinn. 

Veistu meira um málið? Sendu okkur upplýsingar á ritstjorn@visir.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×