Fótbolti

Fyrir­liði Evrópumeistaranna á leið til Milan

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Álvaro Morata heldur á Evrópumeistarabikarnum við komuna til Spánar.
Álvaro Morata heldur á Evrópumeistarabikarnum við komuna til Spánar. getty/Diego Radames

Álvaro Morata, fyrirliði nýkrýndra Evrópumeistara Spánar, er á leið til AC Milan frá Atlético Madrid.

Morata lyfti Henri Delaunay bikarnum eftir sigur Spánverja á Englendingum í úrslitaleik EM á Ólympíuleikvanginum í Berlín í gær.

Í dag bárust svo fréttir af því að Morata væri í viðræðum við Milan um að ganga í raðir ítalska stórliðsins frá Atlético. Hann þekkir vel til á Ítalíu eftir að hafa leikið með Juventus um tveggja ára skeið.

Á meðan Evrópumótinu stóð sagði Morata að sér hefði liðið betur þegar hann spilaði utan Spánar og nú virðist hann vera á förum frá heimalandi sínu.

Morata, sem er 31 árs, skoraði eitt mark á EM og hefur alls gert 36 mörk í áttatíu landsleikjum.

Milan endaði í 2. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili. Eftir það tók Paulo Fonseca við liðinu af Stefano Pioli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×