Handbolti

Haukur til Dinamo Búkarest

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Haukur Þrastarson er farinn til Rúmeníu.
Haukur Þrastarson er farinn til Rúmeníu. VÍSIR/VILHELM

Haukur Þrastarson, landsliðsmaður handbolta, er genginn í raðir Rúmeníumeistara Dinamo Búkarest frá Kielce í Póllandi.

Haukur gekk til liðs við Kielce 2020 og varð þrisvar sinnum pólskur meistari með liðinu. 

Selfyssingurinn glímdi hins vegar við erfið meiðsli á tíma sínum hjá Kielce og sleit meðal annars krossband í hné í tvígang.

Haukur spilaði hins vegar mikið á síðasta tímabili og lék meðal annars með íslenska landsliðinu á Evrópumótinu í janúar.

Haukur er fyrsti Íslendingurinn sem leikur með Dinamo Búkarest sem hefur orðið rúmenskur meistari átta sinnum í röð. Liðið tekur þátt í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×