Erlent

Ís­lendingur féll af kletti í Grikk­landi

Jón Þór Stefánsson skrifar
Atvikið sem málið varðar átti sér stað á Lafkos á Grikklandi.
Atvikið sem málið varðar átti sér stað á Lafkos á Grikklandi. Getty

Íslenskur karlmaður á fertugsaldri féll fram af kletti í bænum Lafkos í Grikklandi í gær. Hann var í kjölfarið fluttur á sjúkrahús með minni háttar áverka.

Frá þessu er greint í gríska miðlinum Thessalia, en þar segir að að mikill viðbúnaður hafi verið á vettvangi málsins.

Maðurinn er sagður hafa hringt í eiginkonu sína og sagt henni að hann hefði fallið fram af kletti og að hann gæti ekki hreyft sig.

Veistu meira um málið? Sendu okkur upplýsingar á ritstjorn@visir.is.

Í kjölfarið komu viðbraðgsaðilar á vettvang. Fram kemur að sex bílar frá slökkvliðinu hafi tekið þátt í aðgerðinni.

Viðbragðsaðilum tókst að losa manninn í gærkvöldi. Hann er sagður hafa hlotið minni háttar áverka. Hann var þó fluttur á sjúkrahús til öryggis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×