Golf

Eva í for­ystu eftir fyrsta hring

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Eva Kristinsdóttir (til vinstri) leiðir eftir fyrsta dag Íslandsmótsins í golfi.
Eva Kristinsdóttir (til vinstri) leiðir eftir fyrsta dag Íslandsmótsins í golfi. seth@golf.is

Eva Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar er með þriggja högga forystu í kvennaflokki þegar fyrsta degi Íslandsmótsins í golfi er lokið. Mótið hófst í morgun á Hólmsvelli í Leiru.

Eva lék frábærlega í dag, fékk fjóra fugla á hring dagsins og lauk leik á 69 höggum eða tveimur undir pari.

Hún er þremur höggum á undan næstu kylfingum sem eru Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr GR og Hulda Clara Gestsdóttir úr GKG. Helga Grímsdóttir úr GKG kemur þar á eftir en hún lék á 73 höggum í dag.

Alls taka 57 konur þátt í Íslandsmótinu að þessu sinni. Alls eru leiknir fjórir hringir, sá síðasti á sunnudaginn kemur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×