
Íslandsmótið í golfi

Þrefaldur meistari stefnir á atvinnumennsku: „Langar að fara á LPGA í Bandaríkjunum“
Hulda Clara Gestsdóttir átti sannkallað draumasumar. Bráðlega heldur hún út á síðasta árið í háskóla, eftir það er stefnan sett á atvinnumennsku.

Táningurinn Eva leiðir ásamt ríkjandi Íslandsmeistara
Hin sextán ára gamla Eva Kristinsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir, ríkjandi Íslandsmeistari, leiða Íslandsmót kvenna í golfi þegar aðeins lokahringur mótsins er eftir.

Gunnlaugur Árni bætti vallarmetið og blandar sér í toppbaráttuna
Aron Snær Júlíusson leiðir enn Íslandsmótið í golfi karla megin en Gunnlaugur Árni Sveinsson andar ofan í hálsmálið á honum eftir frábæran hring í dag. Lokahringur mótsins fer fram á morgun.

Böðvar Bragi sló vallarmetið á Hólmsvelli
Böðvar Bragi Pálsson átti hreint út sagt magnaðan dag þegar annar hringur á Íslandsmótinu í golfi var spilaður. Að þessu sinni fer mótið fram á Hólmsvelli í Leiru og gerði Böðvar Bragi sér lítið fyrir og sló vallarmetið.

Ríkjandi Íslandsmeistari komin í forystu
Ragnhildur Kristinsdóttir, ríkjandi Íslandsmeistari í golfi, er komin í forystu eftir dag tvö á Íslandsmótinu í gólfi sem fram fer á Hólmsvelli í Leiru.

Sigurður Arnar og Aron Snær jafnir eftir dag eitt
Aron Snær Júlíusson og Sigurður Arnar Garðarsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, GKG, leiða eftir fyrsta dag Íslandsmótsins í golfi. Mótið fer fram á Hólmsvelli í Leiru. Sá er örlítið breyttur en hann er par 71 í dag í stað 72.

Eva í forystu eftir fyrsta hring
Eva Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar er með þriggja högga forystu í kvennaflokki þegar fyrsta degi Íslandsmótsins í golfi er lokið. Mótið hófst í morgun á Hólmsvelli í Leiru.

Logi tók ekki bara Íslandsmeistaratitilinn með sér heim
Logi Sigurðsson og Ragnhildur Kristinsdóttir tryggðu sér í gær Íslandsmeistaratitilinn í karla- og kvennaflokki í golfi.

Ragnhildur Kristinsdóttir varði forskotið og landaði Íslandsmeistaratitlinum
Ragnhildur Kristinsdóttir úr golfklúbbi Reykjavíkur er Íslandsmeistari kvenna í golfi 2023. Hún landaði titlinum í dag eftir harða samkeppni við næstu þrjá kylfinga.

Logi Sigurðsson tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn með frábærum lokahring
Logi Sigurðsson úr golfklúbbi Suðurnesja er Íslandsmeistari karla í golfi 2023 eftir frábæran lokahring í dag. Logi lék á 66 höggum eða á 5 höggum undir pari og skaust upp fyrir Hlyn Geir Hjartarson sem leiddi eftir keppni gærdagsins.

Hlynur Geir leiðir áfram eftir fyrstu holur dagsins
Lokadagur Íslandsmótsins í golfi er farinn af stað og er Hlynur Geir Hjartarson enn í forystu eftir fjórar holur. Logi Sigurðsson og Andri Þór Björnsson fylgja þó fast á hæla hans.

Úrslitin ráðast á Íslandsmótinu: „Geta orðið miklar sviptingar“
Lokadagur Íslandsmótsins í golfi er runninn upp og í dag verða krýndir nýir Íslandsmeistarar í bæði karla- og kvennaflokki. Keppnin er hörð, fá högg sem skilja á milli efstu kylfinga og hefur mótið gengið eins og í sögu að sögn Brynjars Eldon Geirssonar, framkvæmdastjóra Golfsambands Íslands.

Ragnhildur að síga fram úr öðrum keppendum
Ragnhildur Kristinsdóttir leiðir keppnina í kvennaflokki á Íslandsmótinu í golfi en hún er á fimm höggum undir pari nú á þriðja keppnisdegi og er tæplega hálfnuð með hring dagsins.

Andri heldur forystunni en Guðmundur og Hlynur narta í hælana
Nú þegar langflestir kylfingar hafa lokið öðrum keppnisdegi á Íslandsmótinu í golfi leiðir Andri Þór Björnsson á níu höggum undir pari.

Andri og Ragnhildur á toppnum og niðurskurðurinn nálgast
Annar dagur Íslandsmótsins í golfi hófst í morgun og nú eru allir kylfingar farnir af stað. Ragnhildur Kristinsdóttir leiðir í kvennaflokki, en karlameginn trónir Andri Þór Björnsson á toppnum.

Andri leiðir hjá körlunum en Hulda og Ragnhildur deila forystunni kvennamegin
Langflestir kylfingar hafa nú lokið leik á fyrsta degi Íslandsmótsins í golfi. Andri Þór Björnsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur leiðir á fjórum höggum undir pari, en í kvennaflokki eru þær Hulda Clara Gestsdóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar og Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur jafnar á toppnum.

Jöfn barátta á toppnum á Urriðavelli
Stór hópur kylfinga hefur nú lokið eða er langt kominn með fyrsta hring á Íslandsmótinu í golfi, á Urriðavelli. Baráttan er jöfn á toppnum.

Íslandsmótið hafið og kvennamet sett
Fyrstu kylfingar eru nú að ljúka fyrsta hring á Íslandsmótinu í golfi sem að þessu sinni fer fram á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi. Mótið stendur yfir fram á sunnudag.

Ólafía Þórunn: Ekki að hætta af því að mér gengur illa
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, einn fremsti kylfingur Íslands, tilkynnti í dag að hún væri hætt í atvinnumennsku í golfi. Ólafía ætlar að takast á við ný ævintýri.

Stofnaði fatalínu fyrir golfara landsins: „Sniðugt að líta út eins og maður geti eitthvað í klúbbhúsinu“
Nafnið Styrmir Erlendsson kveikir ef til vill ekki á mörgum bjöllum nema fólk sé úr Árbænum eða hafi fylgst gríðarlega vel með neðri deildum íslenskrar knattspyrnu undanfarin ár. Styrmir er þó að skapa sér nafn í öðrum geira þessa dagana en hann er á bakvið íslenska golfmerkið Brutta Golf.

Evrópumeistari, Íslandsmeistari og valin í úrvalslið Evrópu
Kylfingnum unga Perlu Sól Sigurbrandsdóttur hefur gengið allt í haginn undanfarna daga. Hún hefur nú verið valin í fimm manna úrvalslið Evrópu í golfi.

Perla Sól: „Markmiðið var að vinna mótið"
Perla Sól Guðbrandsdóttir fór með það að markmiði að vinna Íslandsmótið í golfi um nýliðna helgi þrátt fyrir að vera einungis 15 ára gömul. Það tókst hjá þessum frábæra kylfingi.

Perla og Kristján standa uppi sem sigurvegarar
Mótsstjórn Íslandsmótsins í golfi hefur ákveðið að fella niður lokaumferð mótsins en ekki er hægt að keppa í Vestmannaeyjum vegna veðurs.

Gera lokatilraun til að klára mótið síðdegis
Tilkynning barst frá mótsstjórn Íslandsmótsins í golfi fyrir stundu. Frá síðustu tilkynningu hefur úrkoma verið mjög mikil og völlurinn er eins og sakir standa óleikhæfur vegna bleytu.

Keppni frestað vegna veðurs á Íslandsmótinu í golfi
Fresta hefur þurft keppni á Íslandsmótinu í golfi sem fram hefur farið í Vestmannaeyjum um helgina. Staðan verður tekin um framhald mótsins á hádeginu í dag.

Vallarmet og sviptingar á toppnum
Kristján Þór Einarsson, kylfingur úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar, er með tveggja högga forystu fyrir lokadaginn á Íslandsmótinu í golfi sem fram fer á Vestmannaeyjavelli. Sigurður Bjarki Blumenstein jafnaði vallarmetið í Eyjum á hring dagsins.

Ólafía nálgast Perlu | Spennandi lokadagur fram undan
Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir átti stórgóðan hring á þriðja degi Íslandsmótsins í golfi í Vestmannaeyjum í dag. Lengi vel var útlit fyrir að hún tæki forystu en hún er aðeins höggi á eftir hinni 15 ára gömlu Perlu Sól Sigurbrandsdóttur sem hefur leitt mótið frá fyrsta degi.

Birgir leiðir eftir frábæran hring í Eyjum
Birgir Guðjónsson, kylfingur úr Golfklúbbnum Esju, leiðir Íslandsmótið í golfi eftir 36 holur. Hann lék hring dagsins á Vestmannaeyjavelli á sex höggum undir pari.

Perla Sól heldur forystunni
Perla Sól Sigurbrandsdóttir viðheldur forystu sinni á Íslandsmótinu í golfi sem fram fer í Vestmannaeyjum um helgina. Hún er með þriggja högga forystu.

Evrópumeistarinn með þriggja högga forskot á toppnum
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Evrópumeistari unglinga frá því á dögunum, er með þriggja högga forskot þegar keppni í kvennaflokki á Íslandsmótinu í golfi í Vestmannaeyjum er hálfnuð.