Sport

Jón & Margeir tor­færan í beinni á Vísi og Stöð 2 Sport á morgun

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Bílar munu fljúga á Blönduósi.
Bílar munu fljúga á Blönduósi. stöð 2 sport 5

Torfæruklúbburinn heldur fjórðu umferð Íslandsmótsins í torfæruakstri í gryfjum rétt fyrir utan Blönduós á morgun, laugardaginn 20. júlí.

Þetta er næst síðasta umferðin í Íslandsmótinu og hefur slagurinn sjaldan verið harðari á toppnum.

Sýnt verður beint frá torfærunni, sem kölluð er Jón & Margeir torfæran, hér á Vísi og Stöð 2 Sport 5 og hefst útsending á morgun klukkan 10:55.

Von er á glæstum tilþrifum líkt og þeim sem sjá má úr fyrri keppnum í spilaranum hér að neðan. 

Klippa: Stikla fyrir Jón & Margeir torfæruna



Fleiri fréttir

Sjá meira


×