Innlent

Vand­ræði á heims­vísu og ber­skjaldaðir í­búar hjól­hýsa­byggðar

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Margrét Helga Erlingsdóttir les kvöldfréttir klukkan 18:30.
Margrét Helga Erlingsdóttir les kvöldfréttir klukkan 18:30. Vísir

Kerfisbilun olli vandræðum um allan heim í dag. Flugsamgöngur og greiðslukerfi lágu niðri en íslensk fyrirtæki virðast hafa sloppið vel. Við förum yfir málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðum við sérfræðing í netöryggismálum í beinni.

Trump sló nýjan tón og boðaði samstöðu í ræðu sinni á landsþingi repúblikana í gær. Við heyrum í honum og förum einnig í hjólhýsabyggðina við Sævarhöfða. Íbúar segja afstöðu borgarstjóra gagnvart þeim fordómafulla og kalla eftir því að þeim verði komið fyrir á viðunandi stað. Núverandi fyrirkomulag ógni lífi þeirra og heilsu.

Við verðum einnig í beinni útsendingu frá setningu götubitahátíðar sem stendur yfir um helgina og hittum mann á tíræðisaldri sem málar og lagar dvergastyttur fyrir Eyjamenn.

Í Sportpakkanum verður rætt við landsliðsþjálfara kvenna í fótbolta sem sótti innblástur til sonar síns fyrir magnaðan sigur Íslands á Þýskalandi á dögunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×