Golf

Gunn­laugur Árni bætti vallar­metið og blandar sér í topp­bar­áttuna

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Gunnlaugur Árni lék frábærlega í dag.
Gunnlaugur Árni lék frábærlega í dag. Golfsamband Íslands/Sigurður Elvar

Aron Snær Júlíusson leiðir enn Íslandsmótið í golfi karla megin en Gunnlaugur Árni Sveinsson andar ofan í hálsmálið á honum eftir frábæran hring í dag. Lokahringur mótsins fer fram á morgun.

Aron Snær lék frábærlega á fyrsta hring mótsins og lagði þar með grunninn að forystu sinni á mótinu. Böðvar Bragi Pálsson gerði sér reyndar lítið fyrir og setti vallarmet í gær en fylgdi því ekki eftir í dag þegar hann lék á 73 höggum.

Vallarmetið stóð ekki lengi en Gunnlaugur Árni lék á 63 höggum í dag og er nú óvænt jafn Aroni Emil Gunnarssyni í öðru sæti á 11 höggum undir pari. Aron Snær leiðir en hann er á tólf höggum undir pari sem stendur.

Páll Birkir Reynisson og Hákon Örn Magnússon eru jafnir í 4. sæti á tíu höggum undir pari fyrir lokahring mótsins. Að honum loknum verður Íslandsmeistari karla í golfi 2024 krýndur.

Stöðu mótsins má sjá á vef Golfsambands Íslands.


Tengdar fréttir

Böðvar Bragi sló vallar­metið á Hólmsvelli

Böðvar Bragi Pálsson átti hreint út sagt magnaðan dag þegar annar hringur á Íslandsmótinu í golfi var spilaður. Að þessu sinni fer mótið fram á Hólmsvelli í Leiru og gerði Böðvar Bragi sér lítið fyrir og sló vallarmetið.

Sigurður Arnar og Aron Snær jafnir eftir dag eitt

Aron Snær Júlíusson og Sigurður Arnar Garðarsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, GKG, leiða eftir fyrsta dag Íslandsmótsins í golfi. Mótið fer fram á Hólmsvelli í Leiru. Sá er örlítið breyttur en hann er par 71 í dag í stað 72.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×