Innlent

Nafn Ís­lendingsins sem fannst látinn í Taí­landi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Guðmundur Kristinn Ásgrímsson varð 54 ára í janúar síðastliðnum.
Guðmundur Kristinn Ásgrímsson varð 54 ára í janúar síðastliðnum.

Íslendingurinn sem fannst látinn á hóteli í Taílandi í síðustu viku hét Guðmundur Kristinn Ásgrímsson. Hann var 54 ára gamall.

DV greinir frá nafni hins látna og vísar til taílenskra miðla sem hafa fjallað um málið og lýst því sem dularfullu.

Guðmundur Kristinn hafði dvalið í um mánuð á hótelinu en greitt fyrir herbergið einn dag í einu. Þegar hann hafði ekki skilað sér í móttökuna innan nokkurra klukkutíma fór starfsfólk hótelsins og bankaði upp á.

Engir áverkar fundust á Guðmundi Kristni. Beðið er krufningar en í taílenskum miðlum kemur fram að flöskur af áfengi hafi fundist í herberginu. Er ofneysla áfengis nefnd sem möguleg dánarorsök.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×