Um er að ræða 500 fermetra hús á tveimur hæðum sem einkennist af miklum munaði og nútíma þægindum. Sérsmíðaðar innréttingar, vönduð húsgögn, hönnunarmunir og listaverk prýða eignina.
Húsið er teiknað og hannað af Sigurði Hallgrímssyni arkitekt.
Gengið inn í bjarta og rúmgóða forstofu, sem leiðir inn í opið alrýmið með stórum gluggum. Stofurýmið er hlýlega innréttað þar sem náttúrulegur efniviður, mildir litatónar og voldugur arinn skapar notalega stemningu. Aukin lofthæð er á báðum hæðum hússins.
Eldhúsið er stílhreint með hvítri sérsmíðaðri innréttingu og stein á borðum. Fyrir miðju er vegleg eyja með góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu.
Útgengt er úr stofu á glæsilega verönd sem umlykur húsið að mestu, en þar er að finna heitan pott, útisturtu og gufubaðshús.
Á neðri hæð hússins er að finna stærðarinnar bíósal, líkamsræktarherbergi og vínherbergi. Þá eru samtals fimm svefnherbergi og þrjú baðherbergi í húsinu.