Innlent

Loftefni hrundi í húsi sem fæst ekki uppkeypt

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Svona var aðkoman í húsinu í dag. 
Svona var aðkoman í húsinu í dag.  Facebook

Halla Kristín Sveinsdóttir Grindvíkingur rak upp stór augu þegar hún uppgötvaði að loftefni hefði hrunið til jarðar í aðalrými húss í hennar eigu við Borgarhraun í dag. Vegna þess að húsið er í eigu félags hennar fæst það ekki uppkeypt af Þórkötlu og Halla situr uppi með skuldirnar. 

„Þegar við opnum hurðina, þá er allt loftið hrunið út úr aðalrýminu,“ segir Halla í samtali við fréttastofu. Húsið er í eigu lítils félag sem hún og eiginmaður hennar reka og er jafnframt eina húsnæði félagsins. 

Hún segir forsögu málsins þá að sonur hennar hafi misst leiguhúsnæði sitt árið 2018 og verið á leið á götuna. 

Hún og Þórarinn eiginmaður hennar hafi þá brugðið á það ráð að kaupa einbýlishús í nafni félags þeirra sem sonurinn gæti flutt inn í ásamt konu sinni og tveimur ungum börnum. Sjálf hafi Halla og Þórarinn ekki haft efni á að kaupa húsið en félagið hafi getað það. Sonurinn hafi síðan leigt húsið af félaginu og stefnt á að kaupa það af félaginu árið 2024. 

Skuldir á skuldir ofan vegna hússins

Þegar jarðhræringar og yfirvofandi eldgos steðjaði að í nóvember í fyrra flutti fjölskyldan út úr húsinu, sem er staðsett við Borgarhraun 21 í Grindavík, þar sem sigdalurinn vestan megin í bænum er staðsettur. 

Íbúi í nágrenninu sem flutti aftur í Grindavík í sagði við Höllu að lítið sem ekkert hefði verið um jarðskjálfta síðan. Höllu þykir líklegt að hrun loftefnisins hafi orsakast af því að jörðin sé á stöðugri hreyfingu í umræddum sigdal.

Halla og Þórarinn hafa ekki dvalið í Grindavík síðan í nóvember í fyrra. Aðsend

Halla segir að vegna þess að húsið er í eigu félags en ekki einstaklings fáist það ekki uppkeypt af fasteignafélaginu Þórkötlu. 

„Ég er svo reið yfir því að í upphafi er sagt í öllum fjölmiðlum að það verði tekið utan um alla Grindvíkinga og íbúðarhúsnæði þeirra við uppkaupin. En þetta er ekki rétt, vegna þess að þeir vilja ekki borga upp húsnæði sem lögaðili á ekki og fyrirtæki á,“ segir Halla. Húsið hafi ekki verið keypt af fyrirtækinu í gróðaskyni heldur til að hjálpa börnum hennar. 

Halla segist greiða hátt í fjögur hundruð þúsund krónur á mánuði í útgjöld vegna hússins, inni í því séu tryggingar, vatn og rafnmagn og afborganir á húsnæðisláninu. Í ofanálag sé hún að borga af láni vegna blokkaríbúðar sem þau keyptu á Álftanesi eftir að bærinn var rýmdur og heimili þeirra keypt upp. 

Halla veltir fyrir sér hver hefði borið ábyrgð hefðu orðið slys á fólki. Facebook

Spyr hver bæri ábyrgð hefði einhver orðið undir

Hún segir engan hafa dvalið í húsinu síðan í nóvember en Halla og Þórarinn hafi stefnt á að gera húsið fýsilegt fyrir veturinn. Þórarinn, sem starfar í Grindavík, stefndi á að gista þar þegar færðin milli Grindavíkur og höfuðborgarsvæðisins yrði slæm.

„Ég vil bara fá uppkaup. Ég er brjáluð út af þessu, sérstaklega þegar maður kemur og sér þetta,“ segir Halla og vísar til skemmdanna. „Og maður spyr sig, hvað fer næst? Einhver veggur?“ segir Halla og spyr sig hver hefði borið ábyrgð hefði húsið verið í útleigu eða einhver inni í því þegar loftefnið hrundi. 

Hún segir uppkaup á eignum minni fyrirtækja nauðsynlega svo þau geti hafið störf á ný í bænum þegar kostur er á, annars blæði fyrirtækjunum út og þau fari í gjaldþrot. 

Halla segir allt hafa verið með kyrrum kjörum í húsinu þegar þau komu þangað þann 12. júlí. Þetta hafi hins vegar blasað við þeim hjónum þegar þau mættu þangað í dag.Facebook

Erfitt að ná í Þórkötlu

Halla gagnrýnir fasteignafélagið Þórkötlu fyrir slappt upplýsingaflæði. Til að mynda hafi hún fengið þær upplýsingar frá sýslumanni að hægt sé að fylla út svokallað undanþáguskjal til að fá undanþágu á sölunni.

„Þetta undanþáguskjal er ekki inni á Þórkötlu-síðunni. Það hefur enginn getað sótt um undanþágu vegna uppkaupa,“ segir Halla. 

„Þú nærð ekki í neinn hjá Þórkötlu í síma. Þau svara engum tölvupósti, eða í það minnsta mjög illa. Og ef það varðar uppkaup, þá kemur svarið bara: Nei, Þórkatla mun ekki kaupa upp húsnæði lögaðila,“ bætir hún við. Hún segir húsnæðið hljóta að vera undanþágufært vegna þess að sonur hennar hafi ætlað að kaupa húsnæðið, og það hafi ekki verið notað undir neins konar rekstur. 

Þá biðlar hún til þeirra Grindvíkinga í svipuðum sporum að stíga fram og láta heyra í sér.„Látið heyra í ykkur, við Grindvíkingar þurfum að standa saman.“


Tengdar fréttir

„Takk Þórkatla fyrir ekki neitt“

Soffía Snædís Sveinsdóttir er fyrrverandi íbúi í Grindavík er ósátt hvernig gengur að gera upp við eigendur húsnæðis í Grindavík - hún vandar Þórkötlu ekki kveðjurnar.

Segja Grindavík alls ekki ónýta og vilja hleypa fólki inn

Grindvíkingarnir Ómar Davíð Ólafsson og Þormar Ómarsson sem reka báðir fyrirtæki í Grindavík  segja bæinn miklu heillegri en almenningur haldi. Þeir hvetja yfirvöld til að fjarlægja lokunarpósta og hleypa fólki inn í bæinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×