Íslenski boltinn

„Eðli­legt að leik­menn séu upp­gefnir“

Arnar Skúli Atlason skrifar
Halldór Jón Sigurðsson, eða Donni, er þjálfari Tindastóls.
Halldór Jón Sigurðsson, eða Donni, er þjálfari Tindastóls. vísir/hag

Þrátt fyrir tapið fyrir Val, 1-4, í Bestu deild kvenna í kvöld var þjálfari Tindastóls sáttur með sitt lið.

„Ég held ég geti bara verið mjög stoltur af liðinu risastóran hluta af þessum leik, fyrri hálfleikur var mjög fínn, hrikalega góð barátta og við skoruðum frábært mark, 1-1 í hálfleik sem ég er mjög ánægður með. Það vita allir að Valur er betra lið en Tindastóll eðlilega,“ sagði Halldór Jón Sigurðsson, Donni, þjálfari Tindastóls, eftir leik.

„Það er alvitað en mér fannst við setja upp mikla baráttu og gríðarlega vinnusemi og héldum þeim frá okkur stærsta hluta leiksins. Ég er mjög stoltur af liðinu heildar frammistöðuna þegar horft er yfir leikinn.“

Donna fannst skrítið að leikurinn hafi verið í dag en ekki eftir tvo daga.

„Ég held að það sé líka eðlilegt að leikmenn séu uppgefnir. Við fengum einum færri dag til að jafna okkur fyrir leikinn. Það munar um það. Ég hefði viljað fá eitthvað um það að segja að leikurinn sé á miðvikudegi ekki föstudegi, sem önnur lið eru að spila, sem mér fannst mjög lélegt að hálfu þeirra sem tóku þá ákvörðun, ekki innan okkar raða og ég veit ekki hver það var einu sinni,“ sagði Donni.

„Ég hefði gjarnan viljað fá eitthvað um það að segja og ég held að Pétur [Pétursson, þjálfari Vals] sé sammála því að hafa viljað frekar spila þennan leik á morgun eins og ég. En við tökum það þennan leik með okkur, góður kafli úr honum, hefðum viljað halda boltanum meira í seinni hálfleik en orkan var bara búin. Við gátum það ekki og réðum ekki við það. Við höldum bara áfram og ætlum bara að ná í stig í næsta leik.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×