Erlent

„Öfga vin­stri brjál­æðin­gur“ og „Lygna-Ka­mala“

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Allt það sem Biden var áður sekur um er nú fyrst og fremst Harris að kenna.
Allt það sem Biden var áður sekur um er nú fyrst og fremst Harris að kenna. Getty/Bill Pugliano

Donald Trump fór mikinn á framboðsviðburði í Norður-Karólínu í gær þar sem hann uppnefndi Kamölu Harris „Lygnu-Kamölu“ og kallaði hana „öfga vinstri brjálæðing“.

Harris, sem verður forsetaefni Demókrataflokksins að óbreyttu eftir að Joe Biden steig til hliðar, er Trump greinilega hugleikin þessa dagana en hann sagði hana meðal annars „hið ofurfrjálslynda afl á bak við hverja einustu katastrófu“ Biden.

Trump réðist að Harris á þeim sviðum þar sem hún þykir hvað sterkust, gerði lítið úr störfum hennar sem saksóknara og sakaði hana um að vera fylgjandi þungunarrofi eftir fæðingu; „aftöku barns“.

Stjórnmálaskýrendur benda á að það sé ákveðin áhætta fólgin í því að ráðast á Harris hvað varðar lög og reglu og þungunarrof, þar sem Trump er sjálfur dæmdur glæpamaður og hefur sveiflast stafna á milli í eigin afstöðu til þungunarrofs.

Trump hamraði hins vegar einnig á því að Harris hefði mistekist að sinna því verkefni sem henni var falið eftir að hún komst í Hvíta húsið; að móta stefnu og grípa til aðgerða til að stemma stigu við ólöglegum aðflutningi fólks yfir landamærin frá Mexíkó.

„Kamala Harris vill verða forseti grimmra glæpamanna, ólölegra innflytjenda,“ sagði Trump. „Ég verð forseti Bandaríkjamanna sem fara að lögum,“ bætti hann við.

Trump sakaði Harris einnig um að hafa hylmt yfir með Biden og falið það fyrir þjóðinni að hann væri ekki lengur hæfur til að sinna forsetaembættinu. Þá væri hún jafnvel verri en Biden.

„Hún er verri en hann. Af því að hann er þykjustu-frjálslyndur. Þið vitið, hann var ekki það frjálslyndur. Hann var feik. Hún er alvöru frjálslynd.“

Nokkuð hefur verið gert úr því að Harris hafi ekki verið viðstödd ávarp Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, á þinginu í gær og sagði Trump það til marks um að hún væri á móti gyðingum.

Harris mun hins vegar eiga fund með Netanyahu í dag og þá má geta þess að eiginmaður hennar, Douglas Emhoff, er gyðingur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×