Fótbolti

Þýska­land fór létt með Ástralíu

Siggeir Ævarsson skrifar
Reynsluboltinn og fyrirliði Þýskalands, Alexandra Popp, fagnar í leikslok.
Reynsluboltinn og fyrirliði Þýskalands, Alexandra Popp, fagnar í leikslok. vísir/Getty

Þjóðverjar byrjuðu Ólympíuleikana á að leggja Ástralíu 3-0 í knattspyrnu kvenna en Þjóðverjar höfðu töluverða yfirburði í leiknum.

Þjóðverjar sóttu stíft í leiknum og uppskáru þrjú mörk og þægilegan sigur. Marina Hegering kom þeim á bragðið á 24. mínútu og Lea Schüller og Jule Brand bættu svo við sínu markinu hvor á fjögurra mínúta kafla um miðjan seinni hálfleik.

Þá lagði Brasilía Nígeríu 1-0. Gabi Nunes skoraði eina mark leiksins eftir undirbúning frá goðsögninni Mörtu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×