Innlent

Ferða­mennirnir lausir úr haldi eftir líkams­á­rás

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Árásin átti sér stað aðfararnótt laugardags um síðustu helgi.
Árásin átti sér stað aðfararnótt laugardags um síðustu helgi. Vísir/Vilhelm

Þrír erlendir ferðamenn sem gengu í skrokk Íslendings í miðbæ Reykjavíkur síðustu helgi eru lausir úr haldi að lokinni yfirheyrslu. Engin tengsl voru milli mannanna og þolanda, en varðstjóri segir skemmtunina hafa farið fram úr sér.

Þetta staðfestir Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Maðurinn sem ráðist var að er tannbrotinn og var nokkuð slasaður. Unnar segir að hann sé ekki með alvarlega áverka í dag, en hann verði áfram í bataferli sem maður þarf að fara í eftir svona árás.

„Málið er í rannsókn, það er búið að yfirheyra þá og þeir eru lausir frá okkur. Ég veit ekki hvort þeir séu ennþá á landinu,“ segir Unnar.

Verið sé að vinna málið fyrir ákærusviðið þannig þeir geti tekið við því. Unnið sé að því að klára gagnaöflun og þess háttar, og það muni taka nokkrar vikur.

„Það eru engin tengsl á milli þeirra. Skemmtunin fór bara fram úr sér, það var ekki alvarlegra en það,“ segir Unnar.

Tveir mannanna voru með fíkniefni á sér, sem áætlað er að hafi verið kókaín. Unnar segir að það muni liggja fyrir eftir tvær til þrjár vikur, hvort efnin hafi verið kókaín, þegar niðurstöður berast úr efnarannsókn.


Tengdar fréttir

Hinn tannbrotni er íslenskur

Maðurinn sem þrír erlendir ferðamenn gengu í skrokkinn á í miðborg Reykjavíkur í nótt er íslenskur og er að sögn lögreglu tannbrotinn og nokkuð slasaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×