Fótbolti

Allt jafnt í Víkinni í fjörugum leik

Siggeir Ævarsson skrifar
Ekkert gefið eftir í kvöld
Ekkert gefið eftir í kvöld Vísir/Ernir

Víkingur og Þróttur skildu jöfn í Bestu deild kvenna í kvöld í markalausum en fjörugum leik.

Heimakonur byrjuðu leikinn af miklu krafti en gestirnir gáfu ekkert eftir að unnu sig fljótlega inn í leikinn. Færin létu ekki á sér standa hjá báðum liðum og oft mátti engu muna en inn vildi boltinn ekki.

Það var hart tekist á á köflumvísir/Ernir

Þróttar eru eflaust sáttari með stigið en þrjú stig hefðu verið kærkomin fyrir bæði lið. Víkingar eru í fjórða sæti og að reyna að klóra í liðin fyrir ofan og slíta sig frá FH og Stjörnunni sem eru í humátt á eftir.

Á sama tíma eru Þróttarar með annan fótinn í fallbaráttunni. Þrjú stig í kvöld hefðu komið liðinu sjö stigum frá fallsæti en það verður að virða stigið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×