Innlent

Heil­miklar skemmdir sem mun taka sinn tíma að gera við

Telma Tómasson skrifar
Jökulhlaup varð til þess að vegurinn við Skálm fór í sundur.
Jökulhlaup varð til þess að vegurinn við Skálm fór í sundur. Vegagerðin

Starfsmenn Vegagerðarinnar vinna nú hörðum höndum að viðgerð hringvegarins austan Skálmár, sem varð fyrir skemmdum vegna jökulhlaups í Mýrdalsjökli um helgina. Vegurinn eru verulega laskaður.

„Þetta lítur ekkert vel út, við höfum verið að gera fært, en það eru miklar skemmdir og mikil vinna að koma þessu saman aftur,“ segir Ágúst Freyr Bjartmarsson yfirverkstjóri Vegagerðarinnar í Vík í Mýrdal.

Allt kapp var lagt á það í gær að greiða fyrir umferðinni og tryggja samgöngur í báðar áttir, en í dag er horft til þeirra viðgerða sem framundan eru og verið að meta umfangið, en leggja þarf hliðarveg fyrir vinnuvélar og stór tæki.

Björgunarsveitin stýrir umferð um þjóðveginn, sem er einbreiður um sinn, þar til nothæfri ljósastýringu verður komið á. Fjöldi ökumanna beið eftir að komast leiðar sinnar í gærkvöldi, en hringvegurinn við Skálmarbrú var opnaður á ellefta tímanum.

„Þetta gekk vel eftir að við höfðum náð að loka öllum sárum og skemmdum en það var gríðarleg umferð frá átta til tólf. Einhverjum lá á, hóteleigendur biðu eftir sínu fólki og gestum. Það var mikill þrýstingur en það var líka reynt að gera allt sem hægt var. Í heildina gekk þetta mjög vel.“

Hann segir ekki liggja fyrir hve langan tíma taki að gera við veginn. Verið sé að taka saman hvað þurfi að gera og hvernig. Reikna megi með því að vinnan dagi í það minnsta nokkra daga.

„Það er unnið stöðugt að því að koma þessu í lag.“

Vegfarendur eru beðnir um að sýna tillitssemi og virða merkingar meðan viðgerðir standa yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×