Erlent

Sau­tján ára á­kærður fyrir morðið á stúlkunum í Southport

Eiður Þór Árnason skrifar
Fjöldi fólks hefur minnst stúlknanna sem fórust í Southport.
Fjöldi fólks hefur minnst stúlknanna sem fórust í Southport. EPA/ADAM VAUGHAN

Sautján ára ungmenni hefur verið ákært fyrir morðið á þremur stúlkum í danstíma í bænum Southport í norðvesturhluta Englands.

Hin sex ára Bebe King, sjö ára Elsie Dot Stancombe og níu ára Alice Dasilva Aguiar létu lífið í kjölfar hnífaárásar í Hart Space-miðstöðinni á mánudag.

Hann er einnig ákærður fyrir tíu morðtilraunir og vörslu eggvopns en átta önnur börn og tveir fullorðnir slösuðust í stunguárásinni, sum enn í lífshættu.

Hinn ákærði, sem hefur ekki verið nafngreindur sökum aldurs, verður færður fyrir dómara í borginni Liverpool síðar í dag. Lögreglan í Merseyside-sýslu sem Southport tilheyrir greindi frá ákærunum á blaðamannafundi rétt eftir miðnætti að staðartíma. Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá þessu.

Árásin átti sér stað á Taylor Swift-sumarnámskeiði á Hart Street í Southport sem haldið er fyrir grunnskólabörn á aldrinum sex til tíu ára.

Slösuðust við að verja börnin

Lögregla var kölluð til á mánudag þegar tilkynnt var um hnífstungu um hádegisbil. Þegar lögreglumenn komu á staðinn kom í ljós að margir, þar á meðal börn, höfðu orðið fyrir „grimmilegri árás“ og hlotið alvarlega áverka, af því er fram kom á blaðamannafundinum.

Hinn ákærði er sagður hafa gengið inn í bygginguna vopnaður hníf og ráðist á þá sem þar voru. Tveir fullorðnir einstaklingar slösuðust lífshættulega við að reyna að verja börnin fyrir árásinni, að sögn lögreglu.

„Engin orð geta lýst því sem hefur dunið yfir fjölskyldu okkar nú þegar við reynum að takast á við missi litlu stúlkunnar okkar Bebe,“ segir í yfirlýsingu frá fjölskyldu Bebe sem fórst í árásinni.

Fjölskylda Alice minntist sömuleiðis dóttur sinnar: „Haltu áfram að brosa og dansa eins og þú elskar að gera prinsessan okkar. Eins og við höfum áður sagt, þá verður þú alltaf prinsessan okkar og enginn gæti breytt því. Ást frá hetjunum þínum, pabba og mömmu.“

Árásin valdið reiði í Englandi

Meira en hundrað einstaklingar voru handteknir í mótmælum í miðborg Lundúna á miðvikudagskvöld eftir dauðsföllin í Southport, að sögn lögreglunnar.

Fólk hafi verið handtekið fyrir margvísleg brot, þeirra á meðal ofbeldi og óspektir, árás á viðbragðsaðila og brot á mótmælaskilyrðum.

Óeirðir brutust út í Southport á þriðjudag, nokkrum klukkustundum eftir að þúsundir komu saman til að sækja friðsama athöfn til að minnast stúlknanna sem fórust.

Stór hópur mótmælenda réðst á framhlið mosku og kastaði múrsteinum, flöskum, flugeldum og grjóti á meðan lögreglumenn notuðu óeirðaskildi til að verja sig þegar ruslatunnum var fleygt að þeim. Einnig var kveikt í lögreglubíl.

Lögreglan í Merseyside sagði að meira en fimmtíu lögreglumenn hefðu særst í „viðvarandi og grimmilegri árás“. Hún staðhæfði að fólkið sem hafi staðið fyrir ofbeldinu hefði verið espað upp af samfélagsmiðlafærslum sem bentu ranglega til þess að tenging væri milli íslamista og árásinni á mánudag.

Í skilaboðum sem deilt var víða á samfélagsmiðlum fordæmdi Jennifer Stancombe, móðir Elsie, ofbeldið.

„Þetta er það eina sem ég mun skrifa, en vinsamlegast stöðvið ofbeldið í Southport í kvöld,“ skrifaði hún. „Lögreglan hefur verið ekkert nema hetjur síðasta sólarhringinn og við þurfum ekki á þessu að halda.“

Nokkrir lögreglumenn slösuðust einnig í öðrum óeirðum í sjávarbænum Hartlepool á miðvikudag, að sögn lögreglunnar í Cleveland, og þá var greint frá óeirðum í borginni Manchester og bænum Aldershot.


Tengdar fréttir

Yfir hundrað handteknir í óeirðum í Lundúnum

Mótmæli vegna stunguárásarinnar í bænum Southport í Norður-Englandi á mánudag hafa dreift sér út fyrir bæinn. Lögreglan í Lundúnum handtók tugi mótmælenda eftir að óeirðir brutust út við Downingstræti í kvöld. 

Óeirðir í Southport eftir mannskæðu árásina

Hópur öfgahægrimanna safnaðist saman fyrir utan mosku í bænum Southport í Norður-Englandi í kvöld, þar sem þrjár stúlkur voru stungnar til bana á dansnámskeiði í gær. Mótmælendur köstuðu flöskum og grjóti í lögreglumenn og kveiktu í lögreglubíl. 

Foreldrar og kennarar minnast ungu stúlknanna

Stelpurnar þrjár sem létust í hnífaárás í Southport á Englandi í gær hétu Bebe King, Elsie Dot Stancombe og Alice Dasilva Aguiar. Þær voru sex, sjö og níu ára gamlar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×