Innlent

Raf­bílar rétta að­eins úr kútnum eftir dýfu

Kjartan Kjartansson skrifar
Þó að flestir rafbílar sem nú eru skráðir séu rafbílar hefur nýskráningum þeirra fækkað mikið frá því í fyrra.
Þó að flestir rafbílar sem nú eru skráðir séu rafbílar hefur nýskráningum þeirra fækkað mikið frá því í fyrra. Vísir/Vilhelm

Flestir þeirra bíla sem voru nýskráðir í júlí voru rafbílar. Hlutfall þeirra í nýskráningum er sagt taka við sér eftir dýfu fyrr á árinu. Nýskráningum rafbíla fækkaði engu að síður mikið frá sama mánuði í fyrra.

Eftir að ívilnanir til rafbílakaupa voru afnumdar um áramótin hefur hrun orðið í skráningum rafbíla. Á fyrstu mánuðum ársins var samdrátturinn á milli ára yfir áttatíu prósent.

Rafbílar voru þrjátíu prósent nýskráðra fólksbíla í júlí samkvæmt tölum Bílgreinasambands Íslands. Það var tæpum fimm prósentustigum minna en í fyrra. Skráningum rafbíla fækkaði um 43,3 prósent borið saman við júlí í fyrra. Það er hátt í tíu prósentustigum meira en almennur samdráttur í nýskráningum fólksbíla í mánuðinum sem nam 34,1 prósenti.

Tvinnbílar voru næstir en 23,5 prósent nýskráðra fólksbíla voru þeirrar gerðar. Skráningum þeirra fjölgaði um 58,8 prósent frá því í júlí í fyrra.

Nýskráðir dísilbílar voru 16,5 prósent skráðra fólksbifreiða í júlí og fækkaði þeim um 42,7 prósent frá því í fyrra. Fæstir nýskráðu bílanna voru bensínbílar, 7,4 prósent. Samdrátturinn í skráningum þeirra nam 66,7 prósent frá því í fyrra.

Það sem af er árs hefur nýskráningum fólksbíla fækkað um 37,7 prósent. Nýskráningum einstaklinga á bílum hefur fækkað um 48,1 prósent á fyrstu sjö mánuðum ársins og almennra fyrirtækja um svipað hlutfall. Samdrátturinn hjá ökutækjaleigum er umtalsvert minni, 29,1 prósent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×