Enski boltinn

Ný taktík Arne Slot hjá Liverpool vekur at­hygli

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Liverpool byrjar vel undir stjórn Arne Slot en hér má sjá byrjunarlið liðsins fyrir sigurleikinn á móti Arsenal.
Liverpool byrjar vel undir stjórn Arne Slot en hér má sjá byrjunarlið liðsins fyrir sigurleikinn á móti Arsenal. Getty/Andrew Powell

Liverpool hefur unnið tvo fyrstu opinberu leiki sína undir stjórn hollenska stjórans Arne Slot og byrjar því undirbúningstímabilið vel.

Slot tók við liðinu af Jürgen Klopp í sumar og leikmenn Liverpool segjast finna talsverðan mun á knattspyrnustjórunum. Liðið vann Real Betis fyrst og svo Arsenal í fyrrinótt.

Liverpool reynir meira að halda boltanum undir stjórn þessa hollenska og spilar því líkara Manchester City en það gerði undir stjórn Klopp.

Það á þó eftir að koma betur í ljóst á hvaða leikmenn Slot mun treysta á komandi tímabili og hvernig pressa liðsins verður.

Hollendingurinn er að minnsta kosti tilbúinn að reyna nýja hluti. Það sást meðal annars vel í nýrri hornataktík liðsins.

Í sigurleiknum á móti Arsenal þá reyndu leikmenn Liverpool þessa nýju taktík.

Allir í einum hnapp

Allir leikmenn liðsins, sem voru komnir fram í horninu, söfnuðust saman utarlega í teignum eða við vítateigslínuna.

Grikkinn Kostas Tsimikas tók hornspyrnuna og rétt áður en hann gerði það þá hreyfðu allir leikmenn Liverpool sig í átt að boltanum en þó á mismunandi staði í markteignum, í vítateignum og utan vítateigsins.

Dómarinn dæmdi brot á Liverpool fyrir hindrun á markvörð Arsenal en hornið skapaði engu að síður usla og ruglaði varnarmenn Arsenal greinilega í ríminu.

Það verður fróðlegt að sjá hvort við sjáum meira af svona furðulegum hornspyrnum á komandi tímabili. Hornið má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×