Gummi Ben, íþróttalýsandi með meiru og einn af þáttastjórnendum Stúkunnar - uppgjörsþáttar Bestu deildarinnar, greindi frá þessu á X-síðu sinni, áður Twitter.
Helgi Fróði að fara í næstefstu deild í Hollandi. Flaug út í morgun ✈️➡️#BestaDeildin
— Gummi Ben 🎙️ (@GummiBen) August 12, 2024
Ekki kemur fram hvert hinn 19 ára gamli Helgi Fróði er að fara en um er að ræða lið í hollensku B-deildinni. Hann kom inn í lið Stjörnunnar í Bestu deildinni á síðustu leiktíð og spilaði alls 10 leiki. Hann hefur haldið uppteknum hætti á leiktíðinni í ár og alls komið við sögu í 19 leikjum í deild og bikar.
Þá á Helgi Fróði að baki sex leiki fyrir U-19 ára landslið Íslands.