Mark og titill í fyrsta leik Mbappé með Real

Kylian Mbappé var ekki lengi að skora sitt fyrsta mark fyrir Real Madrid.
Kylian Mbappé var ekki lengi að skora sitt fyrsta mark fyrir Real Madrid. Getty/Valerio Pennicino

Frumraun Kylians Mbappé með Real Madrid gekk eins og í sögu í kvöld þegar liðið vann 2-0 sigur á Atalanta í Ofurbikar UEFA í fótbolta.

Mbappé kom til Real í sumar eftir ansi langan aðdraganda og hann var ekki lengi að skora sitt fyrsta mark fyrir félagið.

Staðan var þó reyndar markalaus í hálfleik en Federico Valverde kom Real yfir á 59. mínútu, eftir frábæran undirbúning Vinicius Junior. Tíu mínútum síðar var svo komið að Mbappé sem smellti boltanum upp í hægra hornið eftir frábæra sendingu frá Jude Bellingham.

Real byrjar því leiktíðina af krafti, eftir að hafa lokið þeirri síðustu á því að vinna Meistaradeild Evrópu. 

Næsti leikur Real er í fyrstu umferð spænsku deildarinnar, á sunnudaginn, þegar liðið sækir Mallorca heim. Atalanta, sem vann Evrópudeildina á síðustu leiktíð og spilað þess vegna leikinn í kvöld, spilar í fyrstu umferð ítölsku deildarinnar á mánudaginn þegar liðið sækir Lecce heim.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira