Tónlist

Ný­dönsk og ADHD fá hvorar tvær milljónirnar

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Nýdönsk hlaut tveggja milljón krónu styrk frá Tónlistarsjóði.
Nýdönsk hlaut tveggja milljón krónu styrk frá Tónlistarsjóði. Nýdönsk

Fimmtudaginn 15. ágúst hélt Tónlistarmiðstöð athöfn til að heiðra styrkhafa seinni úthlutunar Tónlistarsjóðs 2024 en þetta er í fyrsta sinn sem úthlutað er úr öllum deildum nýs Tónlistarsjóðs. Margt var um manninn og ýmis þekkt andlit létu sjá sig.

97 milljónir veittar

Nýr tónlistarsjóður veitti í fyrsta sinn styrki úr öllum deildum sjóðsins. Alls voru 97 milljónir veittar til 111 verkefna.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, ávarpaði styrkhafa og María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar, kynnti nýjungar sjóðsins og umbætur á umsóknarferlinu. Tónlistarmaðurinn Mikael Máni spilaði lagið Expiration Date fyrir viðstadda.

„Það er mikið fagnaðarefni að sjá hversu mörg spennandi verkefni hlutu styrk og ekki síður er það gleðiefni að heyra frá úthlutunarnefndum hve mörg og efnileg verkefni sóttu um. Sú staðreynd að það sé erfitt að velja hver hljóti styrk er mikilvæg vísbending um gróskuna í íslensku tónlistarlífi.

Tónlistarmiðstöð er frábær umgjörð sem býður upp á fjölbreytta þjónustu og tækifæri sem ég hvet sem flesta til að kynna sér. Þar er til dæmis boðið upp á ráðgjöf við styrkumsóknir og þangað má sækja innblástur og fagþekkingu frá einvala sérfræðingum,“ sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir, Menningar- og viðskiptaráðherra í ræðu sinni. 

Lilja Dögg Alfreðsdóttir ráðherra flutti ávarp.Juliette Rowland

Nýdönsk og ADHD fá tvær milljónir

Alls bárust 364 styrkumsóknir en til úthlutunar voru sem áður segir 97 milljónir króna. Veittir voru styrkir til 111 verkefna, þar af fjórir langtímasamningar.

„Kammerhópurinn Nordic Affect fær 2.5 m.kr.til tveggja ára fyrir tónleikadagskrá hópsins árin 2025-2026.

Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves fær 6 m.kr. til þriggja ára, 2024-2026, vegna verkefnisins „Sjálfbært showcase - framtíðarstefna Iceland Airwaves“.

Tónskáldafélag Íslands hlýtur 4 m.kr. til tveggja ára, 2025-2026 vegna Myrkra músíkdaga.

Hlutmengi hlýtur 3 m.kr. til tveggja ára, 2024-2025, vegna tónleikadagskrár í Mengi.

Hæstu tónlistarstyrki úr deild frumsköpunar og útgáfu fá Daníel Bjarnason, 2,9 milljónir króna og Nýdönsk, 2 milljónir króna.

Hæstu flytjendastyrki úr deild lifandi flutnings fá Kammersveitin Elja með 1,5 m.kr. og Mugison, Sinfóníuhljómsveit Suðurlands, Helgi Rafn Ingvarsson og Hljómsveit Akureyrar hljóta 1 m.kr. hvert.

Hæstu viðskiptastyrki úr deild þróunar og innviða hljóta VibEvent, OPIA Community, Þjóðlagahátíðin á Siglufirði, MetamorPhonics, WindWorks í Norðri, Reykjavík Early Music Festival, Múlinn Jazzklúbbur, LungA, Ascension MMXXIV og BIG BANG upp á 1 m.kr. hvert.

Hæstu markaðsstyrki úr útflutningsdeild hlýtur ADHD upp á 2 m.kr. og viibra upp á 1.5 m.kr,“ segir í fréttatilkynningu frá Tónlistarmiðstöð. 

Frekari upplýsingar um veitta styrki og skiptingu á milli deilda Tónlistarsjóðs má nálgast hér.

Hér má sjá myndir frá viðburðinum:

Það var margt um manninn.Aðsend
Högni Egilsson brosti breitt.Juliette Rowland
Tónlistarmennirnir Mikael Máni og Hrafnkell Kaktus á spjalli.Juliette Rowland
Kristín Valsdóttir ásamt Birni Thoroddsen.Juliette Rowland
Margrét Ósk Gunnarsdóttir, umboðsmaður Supersport!, var í salnum en þau fengu 1.000.000 kr. í markaðsstyrk fyrir útflutningi á næstu plötu sveitarinnar.Juliette Rowland
Sindri Ástmarsson og Ísleifur Þórhallsson frá Iceland Airwaves standa glaðbeittir við hlið Einars Bárðarsonar, stjórnarformanns Tónlistarmiðstöðvar.Juliette Rowland
Einar Bárðarson var klæddur í sitt fínasta púss.Juliette Rowland
Tónlistarmaðurinn Mikael Máni tók lagið.Juliette Rowland
Sigtryggur Baldursson útflutningssérfræðingur hjá Tónlistarmiðstöð var í góðum gír.Juliette Rowland
Tónskáldinu Högna Egilssyni var tekið fagnandi.Juliette Rowland
Veitta langtímastyrki fengu Ísleifur Þórhallsson, framkvæmdastjóri Senu fyrir Iceland Airwaves, Ólöf Arnalds fyrir tónleikastaðinn Mengi, Gunnhildur Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Tónskáldafélagsins fyrir Myrka Músíkdaga, og Guðrún Óskarsdóttir meðlimur Nordic Affect sem eru hér ásamt Lilju D. Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra.Juliette Rowland
Sindri Magnússon kynnir styrkhafa úr deild útflutnings.Juliette Rowland
Mikið stuð!Aðsend
Hafdís Bjarnadóttir kynnti niðurstöður úthlutunarnefndar úr deild frumsköpunar og útgáfu. Hún minntist jafnframt tónlistarmannsins Halldórs Bragasonar í ávarpi sínu.Juliette Rowland
Frá vinstri: Hildur Kristín Stefánsdóttir, Gunnhildur Einarsdóttir, Ísleifur Þórhallsson, Sindri Magnússon, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, Hafdís Bjarnadóttir, Guðrún Óskarsdóttir, Kristín Valsdóttir, Ólöf Arnalds, María Rut Reynisdóttir og Anna Rut Bjarnadóttir.Juliette Rowland
Hildur Kristín Stefánsdóttir kynnti styrki.Juliette Rowland





Fleiri fréttir

Sjá meira


×