Ráðuneyti tína til milljónir fyrir nýjum starfsmanni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. ágúst 2024 17:08 Jenný Kristín Valberg teymisstjóri hjá Bjarkarhlíð. Vísir/Einar Tvö ráðuneyti hafa sameinast um að veita Bjarkarhlíð 28 milljóna króna styrk til þess að sinna verkefnum tengdum mansali.
Samtökin hafa síðastliðin ár haft umsjón með framkvæmdateymi um mansalsmál samkvæmt samkomulagi við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið en í ljósi aukinna verkefna í Bjarkarhlíð og aukinnar áherslu stjórnvalda á aðgerðir gegn mansali var ákveðið að veita Bjarkarhlíð styrk sem gerir samtökunum kleift að ráða starfsmann í fullt stöðugildi í tvö ár til þess að sinna mansalsverkefnum. Umfang slíkra verkefna í Bjarkarhlíð hefur aukist verulega síðustu misseri og gert er ráð fyrir að svo verði áfram. Ráðherrarnir ásamt Halldóru Dýrleifar Gunnarsdóttur, formanni stjórnar Bjarkarhlíðar.Vísir/Heimir Már Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið veitir Bjarkarhlíð 18 milljónir króna og dómsmálaráðuneytið 10 milljónir króna. Meginhlutverk Bjarkarhlíðar hvað varðar mansmalsmál er að samhæfa störf og fyrstu viðbrögð þeirra aðila sem koma að velferðarþjónustu til þolenda mansals eða þegar grunur er um slíkt. Samkvæmt samkomulaginu verður lögð áhersla á að móta og samræma almennt verklag þegar kemur að þjónustu við þolendur mansals. Einnig verður lögð áhersla á að kynna hlutverk Bjarkarhlíðar varðandi mansalsmál um land allt og auka þekkingu viðeigandi aðila á helstu birtingarmyndum og eðli mansals. Þá verður leitað leiða til þess að reyna að ná betur til þolenda vændismansals. Við vinnuna fram undan verður horft til athugasemda sem fram komu í síðustu skýrslu GRETA (eftirlitsnefndar Evrópuráðsins með samningi um aðgerðir gegn mansali) um stöðu Íslands. „Brýnt er að taka á mansalsmálum með samræmdum hætti og af festu. Styrkurinn til Bjarkarhlíðar skiptir hér miklu máli. Nýleg dæmi sýna hve mikilvægt er að grípa þolendur um leið og mál koma upp og veita þeim viðeigandi þjónustu. Þau sýna líka hversu dýrmæt reynsla hefur byggst upp í Bjarkarhlíð í mansalsmálum síðastliðin ár,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra. Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir Bjarkarhlíð hafa sinnt mikilvægu hlutverki við meðferð mansalsmála undanfarin ár. „Dómsmálaráðuneytið hefur með þessu samkomulagi í dag lagt lóð á vogarskálarnar til að Bjarkarhlíð geti áfram sinnt þessu mikilvæga hlutverki og mætt auknum málafjölda. Hrundið hefur verið af stað vinnu við nýja aðgerðaáætlun til að mæta okkar alþjóðlegu skuldbindingum. Þá hafa ráðherrar ríkisstjórnarinnar aukið samstarf ráðuneyta í málaflokknum. Gott samstarf og samvinnu þarf til í baráttunni gegn mansali. Það er viðvarandi verkefni hverrar þjóðar að berjast gegn mansali og mikilvægt að sofna ekki á verðinum,“ segir Guðrún. Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, segir 78 mál hafa komið upp á síðasta tímabili mansalsverkefnis í Bjarkarhlíð þar sem grunur var um mansal. Þolendur komu frá tólf 12 mismunandi löndum. „Mansalsteymi Bjarkarhlíðar hefur haft það hlutverk að kalla saman viðbragðsaðila sem starfa í þágu þolenda í þverfaglegu samstarfi við þær stofnanir sem þurfa að koma að málum. Mikil þekking hefur skapast innan mansalsteymisins undanfarin misseri og hefur það haft veg og vanda að því að efla traust á milli stofnana og einstaklinga sem starfa í málaflokknum. Með þessu framlagi munum við ná enn betri árangri í að vinna að heildstæðri nálgun og úrræðum sem verða sérsniðin að þolendum mansals ásamt því að vinna að stefnumótun í þessum mikilvæga málaflokki,“ segir Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar. Samkvæmt þriðju úttektarskýrslu GRETA sem birt var í fyrra voru íslensk stjórnvöld meðal annars hvött til að þróa frekar og styrkja aðstoð til þolenda mansals. Samningurinn við Bjarkarhlíð er liður í því. Bjarkarhlíð er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, dómsmálaráðuneytis, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Samtaka um kvennaathvarf, Stígamóta, Mannréttindaskrifstofu Íslands og Kvennaráðgjafarinnar.
Mansal Félagsmál Lögreglumál Mest lesið „Þetta er hundleiðinlegt auðvitað“ Innlent Fólk með gólfhitakerfi ætti að sýna sérstaka aðgát Innlent „Drengirnir okkar eru líka í hættu“ Innlent Sextíu veikir og minnst sex með nóróveiru Innlent Frost í Reykjavík í nótt Innlent Hélt dauðahaldi í ársgamla dóttur til að forða henni frá að drukkna Erlent Segir Trump mögulega munu tapa ef hann breytir ekki um stefnu Erlent Virðir ekki nálgunarbann og í gæsluvarðhaldi þar til vísað úr landi Innlent Einn látinn og sex saknað eftir að lystisnekkja sökk við Sikiley Erlent Aðstæður svipaðar og dagana fyrir síðasta gos Innlent Fleiri fréttir Sprenging í bílastæðagjöldum og hitað upp fyrir heitavatnsleysið Helgi beðinn um að skila lyklunum Sextíu veikir og minnst sex með nóróveiru Þurfa að leita annað í sund Ráðuneyti tína til milljónir fyrir nýjum starfsmanni Virðir ekki nálgunarbann og í gæsluvarðhaldi þar til vísað úr landi „Þetta er hundleiðinlegt auðvitað“ „Drengirnir okkar eru líka í hættu“ Bein útsending: Málstofa og sýning um íslenskt námsefni Frost í Reykjavík í nótt Vilja ekki tæma klósettin við Nykurhylsfoss Eldglæringar milli VG og Sjálfstæðisflokks Höfuðkúpubrotnaði í vinnuslysi í Hafnarfirði Aukin neysla eykur verðbólgu og dregur úr líkum á vaxtalækkun Þyrlan sótti veikan farþega skemmtiferðaskips Fólk með gólfhitakerfi ætti að sýna sérstaka aðgát Skjálftar á Reykjanesi, í efnahagslífinu og í pólitíkinni Aðstæður svipaðar og dagana fyrir síðasta gos Aukning í skjálftavirkni heldur áfram Tugir barna á bið eftir leikskólaplássi á höfuðborgarsvæðinu Feður sameinuðustu gegn þjóðarmorði á samstöðufundi Ríkisstjórnin gæti ekki lengur að hagsmunum almennings Kýrin Mugga bar þremur myndarlegum kvígum Ónotuð hraðtískuföt hrannast upp hjá Rauða krossinum Kýtingur á stjórnarheimilinu og ofgnótt af hraðtískufötum Lýstu yfir þungum áhyggjum af risi öfgahægri afla Skeytasendingar ráðherra til marks um valdþreytu Ekki lengur hægt að valta yfir lítil sveitarfélög úti á landi Stærra svæði aldrei orðið heitavatnslaust „Algjörlega ósammála“ samráðherra sínum Sjá meira