Innherji

Tap kísilversins á Bakka jókst veru­lega og nam tólf milljörðum fyrir skatta

Helgi Vífill Júlíusson skrifar
Miklar tafir og erfiðar aðstæður á hrávörumörkuðum hafa einkennt rekstur kísilvers PCC á Bakka eftir gangsetningu á vormánuðum ársins 2018.
Miklar tafir og erfiðar aðstæður á hrávörumörkuðum hafa einkennt rekstur kísilvers PCC á Bakka eftir gangsetningu á vormánuðum ársins 2018. VÍSIR/VILHELM

Tap kísilvers PCC á Bakka jókst verulega í fyrra, nam nærri tólf milljörðum króna fyrir skatta, samhliða fallandi tekjum. Verksmiðjan hefur verið rekin á fullum afköstum frá ársbyrjun 2024 sem hefur þýtt umbætur í rekstrinum og framleiðsla verksmiðjunnar farið yfir uppgefna framleiðslugetu. Staða félagsins er því sögð hafa batnað umtalsvert.


Tengdar fréttir

Kísilverið á Bakka fór „verulega undir núllið“ í lok síðasta árs

Kísilverið á Bakka var rekið með verulegu tapi á fjórða ársfjórðungi síðasta árs vegna lítillar eftirspurnar eftir kísilmálmi og aukinnar alþjóðlegrar samkeppni. Þýska móðurfélagið bindur vonir við að minnkandi útflutningur frá Kína muni styðja við verð kísilmálms á komandi mánuðum.

Rekstrartap hjá kísilverinu á Bakka samhliða lækkandi verði á kísilmálmi

Eftir að hafa verið réttum megin við núllið frá lokum síðasta árs varð tap á rekstrinum hjá kísilveri PCC á Bakka á Húsavík á liðnum þriðja ársfjórðungi. Rekstrarumhverfið hefur versnað með lækkandi verði á kísilmálmi samtímis því að hráefniskostnaður hefur hækkað mikið.

Skoða tvö­földun á fram­leiðslu­getu kísil­versins á Bakka

Stjórnendur kísilversins á Bakka hafa til skoðunar hvort ákjósanlegt sé að tvöfalda framleiðslugetu kísilversins á næstu árum í ljósi batnandi rekstrar og markaðsaðstæðna. Þetta staðfestir Rúnar Sigurpálsson, forstjóri PCC Bakka, í samtali við Innherja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×