Upp­gjörið: Þróttur - Breiða­blik 2-4 | Miklir yfir­burðir Blika í blíðunni

Sigurður Orri Kristjánsson skrifar
Blikar fóru mikinn í blíðunni í Laugardal.
Blikar fóru mikinn í blíðunni í Laugardal. Vísir/Anton Brink

Þróttur tók á móti gestunum í Breiðablik í Bestu deild kvenna í knattspyrnu á Avis-vellinum. Það var einstaklega fallegur dagur í Laugardalnum og heyrði blaðamaður gárungana í stúkunni ræða um besta dag sumarsins. Hvort það er satt veit undirritaður ekki en víst er að það var skuggi í stúkunni en sól á vellinum.

Þetta er næst síðasta umferðin áður en deildinni er skipt upp og til mikils að vinna fyrir bæði lið. Breiðablikskonur mættu særðar eftir sárt tap í bikarúrslitum gegn Val á föstudagskvöld en þurftu að vinna leikinn til þess að halda pressu á Val í deildinni.

Jafnræði var með liðunum í upphafi en eftir fyrstu mínúturnar tóku Blikar öll völd á vellinum. Blikakonur voru að komast aftur fyrir vörn Þróttar á flestum svæðum, bæði upp kantana og í gegnum miðjuna. Þar var Samantha Smith sérstaklega hættuleg á hægri kantinum.

Eftir að Blikar höfðu farið illa með tvö úrvalsfæri þá var það sú sem hafði klikkað á þessum færum Birta Georgsdóttir sem braut ísinná 26. mínútu þegar hún skoraði snyrtilegt mark eftir undirbúning Smith. Birta fékk fasta sendingu meðfram jörðinni á markteigshorninu hægra megin og einfaldlega stýrði boltanum framhjá Mollee í marki Þróttar.

Jelena Tinna Kujundzic og Birta Georgsdóttir sem skorðai fyrsta mark leiksins.Vísir/Anton Brink

Blikar sóttu án afláts næstu mínútur og það var með hreinum ólíkindum að það hafi ekki verið fyrr en á lokamínútu hálfleiksins sem dró til tíðinda. Þá átti Samantha háa fyrirgjöf sem Mollee misreiknaði í markinu og Karítas Tómasdóttir skallaði boltann í autt markið. Þægilegt fyrir Karítas og staðan 0-2 í hálfleik.

Fljótlega eftir að síðari hálfleikur hófst fengu Þróttarar hornspyrnu, Sæunn Björnsdóttir tók hana og Melissa Alison Garcia var ein á auðum sjó í miðjum teignum og minnkaði muninn og mögulega hefur farið um nokkra Blika.

Það var þó fullkominn óþarfi því skömmu síðar á 51. mínútu Átti Samantha Smith skot sem fór beint á Mollee í markinu. Hún hélt hins vegar ekki boltanum og Vigdís Lilja skoraði auðveldlega úr frákastinu. Staðan 1-3 og Blikar í bílstjórasætinu.

Vigdís Lilja Kristjánsdóttir skoraði þriðja mark gestanna.Vísir/Anton Brink

Tempóið í leiknum datt aðeins niður eftir þriðja mark Blika en gestirnir héldu þó áfram að stjórna leiknum og það var Samantha sem skoraði ágætis mark úr teignum á 69. mínútu.

Caronline Murray skoraði svo á 79. mínútu og minnkaði muninn í 2-4. Freyja Karín Þorvarðardóttir gerði þá nokkuð vel í teignum og lagði boltann út á Murray sem skoraði af miklu öryggi.

Eftir þetta gerðu Blikar vel í að einfaldlega svæfa leikinn sem lauk með sigri Blika, 2-4.

Góður sigur Blika staðreynd.Vísir/Anton Brink

Atvik leiksins

Þriðja mark Breiðabliks drap endanlega leikinn eftir að Þróttur hafði hótað endurkomu með marki strax í byrjun síðari hálfleiksins. Slakt skot beint á Mollee var varið beint út í teiginn þar sem Vigdís skoraði.

Swift, þó ekki Taylor, átti ekki sinn besta leik í dag.Vísir/Anton Brink

Stjörnur og skúrkar

Það voru margar sem gerðu vel í þessum leik en Samantha Smith var yfirburðarkona á vellinum í dag á hægri kantinum. Hún lagði upp fyrstu tvö mörkin, átti skotið sem var varið út í teiginn í þriðja markinu og skoraði það fjórða.

Samantha lætur vaða að marki.Vísir/Anton Brink

Birta Georgsdóttir átti einnig ágætis leik í framlínunni en hefði mögulega átt að skora fleiri mörk. Mollee Swift hafði í nógu að snúast í marki Þróttar en hún hefði átt að gera miklu betur í mörkum eitt, þrjú og fjögur.

Dómarinn

Gunnar Freyr Róbertsson hélt af öryggi utan um þennan leik og akkúrat ekkert yfir honum að kvarta. Blaðamaður Vísis tók ekkert eftir dómaranum allan leikinn sem er rós í hnappagat hans.Vísir/Anton Brink

Stemmning og umgjörð

Það var vel mætt á völlinn í þessum leik og stemmningin var fín í blíðunni í Laugardalnum. Yngri flokkar félagsins voru heiðraðir í hálfleik og mögulega hafði það eitthvað að gera með hversu vel var mætt.

Ungu iðkendurnir stóðu sig heldur betur með prýði í stúkunni og studdu sitt lið þrátt fyrir mótlæti og yfirburði gestaliðsins.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira